153. löggjafarþing — 61. fundur,  7. feb. 2023.

útlendingar.

382. mál
[00:09]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P):

Herra forseti. Mig langar að vera á svipuðum slóðum og hv. þm. Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir og á svipuðum slóðum og ég var hér áðan. Ég vísaði til skýrslu Rauða krossins um þann hóp einstaklinga sem hefur fengið endanlega synjun um alþjóðlega vernd á Íslandi en geta ekki snúið til baka til heimalands síns þannig að þau ílengjast hér, þau eru bara föst hér á landi. Þau eru þá í rauninni í þeirri ótrúlegu stöðu sem myndast við það að þau eignast börn hér á landi. Við erum t.d. að tala um stærstu hópana sem er fólk frá Írak og Nígeríu. Þau standa þá frammi fyrir því að börn þeirra njóta ekki ríkisfangs foreldra sinna frá landinu sem þau eru að flýja né heldur fá þau íslenskt ríkisfang við að fæðast hér á landi. Fyrir það fyrsta gengur þetta náttúrlega gegn þeim alþjóðlegu skuldbindingum sem Ísland hefur undirgengist, að útrýma ríkisfangsleysi, það sé búið að stilla kerfinu um umsækjendur um alþjóðlega vernd þannig upp hér á landi að það sé lítill en stækkandi hópur sem eignast börn undir þessum aðstæðum sem ekki nýtur ríkisfangs heldur — nú er ég með svo langa setningu, ég man ekki hvernig ég ætlaði að enda hana. (Gripið fram í.) Það er líka bara tilfinningin sem fylgir þessu sem fólki lýsir svo vel varðandi stöðu foreldris þar sem barnið fæðist í óljósri stöðu. Þetta er nú eitt af því sem hefur verið bent á af Rauða krossinum og Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna, kannski ekki sérstaklega í því frumvarpi sem við ræðum hér í dag en oft í tengslum við breytingar á útlendingalögum og bara í samskiptum við stjórnvöld yfirleitt, að staða fólks án ríkisfangs er bara almennt mjög slæm en staða barna sem fæðast ríkisfangslaus er enn verri. Þannig að þetta eru börn sem fæðast hér en fá ekki ríkisfang frá heimalandi foreldra. Segjum að foreldrarnir komist síðan í þá stöðu að vilja fara aftur heim til sín, að vilja fara aftur til landsins sem þau flýðu upphaflega frá. Þá er staðan oft sú að það land vill ekki taka við barni fólksins vegna þess að það viðurkennir ekki að viðkomandi barn sé ríkisborgari þess ríkis. Þá eru þessir einstaklingar, fæddir á Íslandi, orðnir algerlega landlausir.

Það sem Rauði krossinn bendir á, og hefði verið svo auðvelt fyrir meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar að bregðast við, eru tillögur í fjórum liðum. Fjórða tillagan er einfaldlega sú að kanna stöðu þessa hóps, að gera úttekt á því hverjar aðstæður barna eru sem fæðast hjá foreldrum sem eru strandaglópar á Íslandi með þessum hætti. Þetta er eitthvað sem allsherjar- og menntamálanefnd hefði sem hægast getað gert í nefndaráliti, þess vegna bara beint þessu til ráðuneytisins að gera, þó að meiri hlutinn hefði kannski ekki viljað setja það inn sem einu sinni bráðabirgðaákvæði í lögin. En þetta er ekki gert. Það er í engu brugðist við þessari sláandi skýrslu og skýru umsögn Rauða krossins um einn af viðkvæmustu hópunum innan þess mengis sem þetta frumvarp fjallar um.