153. löggjafarþing — 61. fundur,  7. feb. 2023.

útlendingar.

382. mál
[00:30]
Horfa

Frsm. 3. minni hluta allsh.- og menntmn. (Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir) (P):

Herra forseti. Það er komið að því. Ég var hérna að fjalla um umsögn Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna, um b-lið, 8. gr. sem veitir Útlendingastofnun heimild til að vísa fólki þangað sem stofnuninni finnst sanngjarnt og eðlilegt að fólk dvelji. Það sem var athyglisvert við það sem ég las upp hér áðan, sem ég ætla ekki endurtaka en ég ætla bara rétt að fara yfir í örstuttu máli, er að Flóttamannastofnun leggst ekki alfarið gegn því að ríki setji lög eða reglur eða gerir samninga þess efnis að vísa megi flóttafólki eitthvert annað. Flóttamannastofnun leggst ekki gegn því, það er ekkert „no borders“ í gangi hér. Hins vegar eru ákveðin skilyrði fyrir því. Það eru tvær leiðir til þess að vísa fólki eitthvert annað. Önnur leiðin kallast fyrsta griðland, eða sem sagt fyrsta land þar sem alþjóðleg vernd er veitt, hin leiðin kallast þriðja land þar sem alþjóðleg vernd er veitt.

Í frumvarpinu sem við erum hér að ræða er því haldið fram í b-lið 8. gr. að það sé um einhvers konar reglu um fyrsta griðland að ræða, en það er ekki svo. Það er einmitt þriðja öruggt ríki. Það er það viðmið sem er verið að gera þar. Reglur um svokallað fyrsta griðland eru nær öðrum ákvæðum sem ég mun fjalla um á eftir, sem við erum með í okkar lögum, um að fólk sem hefur verið veitt alþjóðleg vernd í öðru ríki skuli fara þangað aftur. Sömuleiðis Dyflinnarreglugerðin sem segir að þú eigir að fara aftur til baka til þess ríkis sem ber ábyrgð á því að þú ert kominn inn á svæðið eða fyrsta ríkisins sem þú komst til. Ég ætla ekki að þreyta áheyrendur með smáatriðum um Dyflinnarreglugerðina, sem er mjög misskilin reglugerð, en ég geri það kannski síðar ef þörf krefur. En þar erum við að tala um reglur um fyrsta griðland. Þessi regla snýst ekki fyrsta griðland vegna þess að um getur verið að ræða land sem umsækjandi hefur hreinlega aldrei komið til. Það getur reyndar líka verið þannig í Dyflinnarreglugerðinni — ég skal flækja það aðeins betur síðar.

Eftirfarandi skilyrði eru fyrir því að vísa fólki til fyrsta lands þar sem alþjóðlega vernd gæti verið veitt eða er veitt. Ég ætla að lesa upp úr umsögn Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna í löggiltri þýðingu ólöglærðs þýðanda, með leyfi forseta:

„Hvað umsækjendur varðar sem hafa þegar hlotið alþjóðlega vernd í öðru landi áður en þeir komu til Íslands er hugtakið „fyrsta land þar sem alþjóðleg vernd er veitt“ almennt í gildi.“

Ég geri hlé á tilvitnuninni. Akkúrat. Þarna erum að tala um Grikkland, sem dæmi. Við erum ekki að tala um Chile fyrir Venesúelabúa. Við erum að tala um reglur sem eru þegar í gildi. Það er því misskilningur þarna í frumvarpinu, sem segir kannski svolítið um það hvernig frumvarpið er unnið í heildina. Áfram heldur, með leyfi forseta:

„Alþjóðlega verndin sem í boði var í þessu fyrsta landi þarf að vera aðgengileg og virk fyrir einstaklinginn sem um ræðir. Þó svo að tillagan skilgreini ekki þær forsendur sem liggja til grundvallar skilgreiningunni „fyrsta land þar sem alþjóðleg vernd er veitt“ hefur Flóttamannastofnunin staðfastlega haldið því til haga að til þess að nota megi hugtakið „fyrsta land þar sem alþjóðleg vernd er veitt“ — fyrsta griðland — „þurfi að meta á einstaklingsgrundvelli hvort flóttamaðurinn muni

a. fá aftur aðgang inn í [þetta fyrsta griðland];

b. fá rétt til löglegrar dvalar; og

c. njóta meðhöndlunarstaðla sem eru í samræmi við flóttamannasamninginn frá 1951 og bókunina frá 1967 og alþjóðlega mannréttindastaðla, þar á meðal - en ekki einvörðungu - vernd gegn því að vera send aftur til lands þar sem hann er í hættu.

Aðeins er hægt að vísa umsókn frá án efnislegrar meðferðar og senda umsækjandann aftur til fyrsta lands þar sem alþjóðleg vernd er veitt þegar búið er að uppfylla þessi skilyrði í tilfelli hvers einstaklings.“

Aftur, til einföldunar ætla ég að fá að fara aðeins yfir þetta: Það er í lagi að ríkið setji reglur sem kveða á um það að ef þér hefur verið veitt alþjóðleg vernd í öðru landi megi senda þig til baka þangað. Skilyrðin eru þessi: Viðkomandi þarf að hafa heimild til komu, hann þarf að hafa heimild til dvalar og njóta skilyrða, njóta réttinda í ríkinu í samræmi við flóttamannasamninginn og alþjóðlega mannréttindastaðla, þar á meðal en ekki einvörðungu vernd gegn því að vera sendur aftur til lands þar sem hann er í hættu.

Þetta var reglan um fyrsta griðland sem snýst um eitthvað allt annað en b-liður 8. gr. frumvarpsins þó að þar sé talað um fyrsta griðland. Hún snýst nefnilega um þriðja land þar sem alþjóðleg vernd er veitt. — Enn annar syllutryllir í boði Arndísar. Ég óska eftir að verða sett aftur á mælendaskrá.