útlendingar.
Herra forseti. Ég lauk máli mínu í síðustu ræðu á því að fara aðeins yfir það hvernig hæstv. dómsmálaráðherra ákvað fyrir tæpu ári að nýta sér neyð Úkraínubúa til að ýta á eftir sinni persónulegu herferð í þágu þessa frumvarps sem við ræðum hér í dag. Hann var að tala um það fólk sem hefði sótt um alþjóðlega vernd á Íslandi — kannski er fólk að flýja stríðið í Sýrlandi, átök í Afganistan, ástandið í Írak, mansal í Nígeríu, það er langur listi af fólki sem kæmi til greina — að það fólk væri að teppa húsnæði og aðstöðu fyrir aðra sem ráðherrann vildi frekar taka á móti, sem var þá á flótta undan stríðinu í Úkraínu. Það er nú kannski rétt að staldra við og segja að auðvitað áttum við að taka á móti fólkinu frá Úkraínu frá fyrsta degi og höfum gert það vel. Ísland hefur náð að taka á móti þúsundum fólks á flótta þaðan, sem sýnir kannski ágætlega hvers megnugt kerfið er að standa undir óvenjumikilli ágjöf. Það margfaldaðist fjöldi fólks á flótta á Íslandi. Auðvitað fylgdu því ákveðnar áskoranir en svona heilt yfir þá hefur þetta gengið, þetta hefur tekist. Ef við lítum á þann hóp sem er í landinu í dag þá er úkraínska flóttafólkið hrein viðbót en hinn hópurinn hefur haldið nokkuð vel sjó, er svipað stór og undanfarin ár.
En alla vega var það sem hæstv. ráðherra taldi gegn fólkinu sem honum þótti vera að teppa húsnæði, var að það neitaði að undirgangast læknisrannsókn til að auðvelda stjórnvöldum að framkvæma þvingaða brottvísun á þeim, koma þeim til Grikklands þvert á sinn vilja. En síðan á svipuðum tíma og hæstv. dómsmálaráðherra var að mæla fyrir þessu frumvarpi núna í haust þá leigði hann þotu til að fylla með fólki úr þessum hópi og koma því þannig til Grikklands. Covid-takmarkanirnar voru að baki og þá bretti hann upp ermar og leigði þessa þotu. Í því farartæki voru, að ég held, eingöngu umsækjendur um alþjóðlega vernd sem voru í þeirri stöðu að það var ágreiningur við stjórnvöld um það hvort þau hefðu verið völd að töf á eigin umsókn um alþjóðlega vernd og þá var grundvallarágreiningur um hvort þau ættu heimtingu á efnislegri meðferð mála sinna eða ekki. Sum þeirra voru með mál fyrir dómstólum og sum þeirra voru það nálægt fyrirtöku að þetta virkaði allt saman eins og brottvísunin væri skipulögð til að koma í veg fyrir að fólk gæti hlotið áheyrn fyrir dómi. En síðan kom niðurstaðan t.d. í máli Husseins Husseins, sem var töluvert í fréttum, og niðurstaða héraðsdóms sem tók undir málstað umsækjandans, þannig að fólkið sem hæstv. dómsmálaráðherra skóflaði upp í vél er allt í einu orðið fólk sem héraðsdómur taldi hafa átt heimtingu á efnislegri meðferð hér á landi. — Þá er tíminn liðinn. Ég á áfrýjunina eftir. Það er næst, herra forseti.