153. löggjafarþing — 61. fundur,  7. feb. 2023.

útlendingar.

382. mál
[00:57]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Ég held áfram hérna. Nú er ég að fjalla um beitingu ákvæða mannréttindasáttmálans í íslenskum dómaúrlausnum úr frumvarpi til laga um mannréttindasáttmála Evrópu, með leyfi forseta:

„Í ríkjum þar sem byggt er á tvíeðli þjóðaréttar og landsréttar, er sem áður segir almennt gengið út frá því í fræðikenningum að reglum þjóðréttarsamninga, sem eru ekki beinlínis lögfestar, verði ekki beitt sem réttarheimild í eiginlegum skilningi. Er þá ráðgert að samræma verði landsrétt við ákvæði þjóðréttarsamninga eftir því sem kostur er með skýringu laga ríkisins þegar á það reynir í dómsmálum eða fyrir stjórnvöldum, en þegar svigrúmi til lögskýringar sleppir og útséð er að samræming takist ekki á þann hátt verði landsréttur að ganga fyrir reglum þjóðaréttar. Þessum kenningum hefur lengi verið fylgt í dómsúrlausnum hér á landi eins og eftirfarandi dæmi sýna …“

Þau eru ansi mörg þannig að við rennum aðeins yfir þau. Fyrsta dæmið, með leyfi forseta:

„Eftir því sem næst verður komist reyndi í fyrsta sinn á áhrif ákvæða mannréttindasáttmála Evrópu í máli fyrir bæjarþingi Reykjavíkur nr. 968/1959, en þar byggði málsaðili meðal annars á því að reglur um stóreignaskatt í lögum nr. 44/1957 brytu gegn tilteknum ákvæðum sáttmálans. Um þetta sagði eftirfarandi í dómi í málinu: „Að því er Evrópusamninginn varðar hefur Alþingi með þingsályktun 19. desember 1952 veitt ríkisstjórninni heimild að honum og fullgildingarskjal var afhent af Íslands hálfu hinn 29. júní 1953. Hins vegar hefur samningur þessi ekki verið lögtekinn hér á landi, hvorki að hætti almennra laga né stjórnskipunarlaga. Getur stefnandi því eigi byggt á því hér fyrir dómi, að nefndur samningur veiti honum nokkurn þann rétt til lausnar undan skattákvæðum laga nr. 44/1957, sem hann samkvæmt framansögðu eigi nýtur samkvæmt ákvæðum íslenskra stjórnskipunarlaga.““

Annað dæmið, með leyfi forseta:

„Í dómi Hæstaréttar, sem birtur er í dómasafni hans frá 1963, bls. 461, reyndi á það hvort heimilt væri að verða við kröfu ákæruvaldsins um hald á erlendum togara vegna rannsóknar máls um landhelgisbrot. Í dóminum var krafan tekin til greina með vísan til heimilda í ákvæðum laga um bann við botnvörpuveiðum, nr. 5/1920, til að leggja hald á skip sem hefur verið notað til ólöglegra botnvörpuveiða hér við land, og selja það síðan að undangengnu fjárnámi til lúkningar á sektum á hendur skipstjórnarmanni og málskostnaði. Vísaði Hæstiréttur í dómi sínum sérstaklega í þessu sambandi til fyrirmæla um heimildir til að skerða friðhelgi eignarréttarins í niðurlagi 1. gr. samningsviðauka nr. 1 við samninginn um verndun mannréttinda og mannfrelsis, að því er virðist til áréttingar því að umrædd íslensk lög samrýmdust þeim fyrirmælum, en ekki verður séð af dóminum hvort það hafi verið dregið í efa í málinu.“

Og þriðja dæmið, með leyfi forseta:

„Í dómi Hæstaréttar, sem birtur er í dómasafni frá 1970, bls. 212, var leyst úr því hvort skipstjóra yrði gerð refsing fyrir fiskveiðabrot sem hann átti ekki sjálfur þátt í að drýgja. Gagnstætt niðurstöðu meiri hluta Hæstaréttar taldi einn dómari í sératkvæði að sýkna yrði skipstjórann af refsikröfunni. Var þetta byggt á því að ekki segði berum orðum í ákvæðum laga nr. 62/1967, sem hér reyndi á, að skipstjóri bæri refsiábyrgð án sakar á fiskveiðabroti sem væri drýgt á skipi hans. Var talið í sératkvæðinu að ekki væri unnt að dæma refsingu án sakar nema slíkt væri beinlínis tekið fram í lögum, en þessu til stuðnings var meðal annars vísað til ákvæða 2. mgr. 6. gr. samningsins um verndun mannréttinda og mannfrelsis.“

Ég bið forseta vinsamlegast um að setja mig aftur á mælendaskrá þannig að ég geti haldið áfram að fara yfir dómana sem vísa í mannréttindasáttmála Evrópu.