153. löggjafarþing — 61. fundur,  7. feb. 2023.

útlendingar.

382. mál
[01:02]
Horfa

Frsm. 3. minni hluta allsh.- og menntmn. (Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir) (P):

Herra forseti. Ég er hér að ræða b-lið 8. gr. frumvarpsins varðandi heimild til handa Útlendingastofnun að vísa fólki þangað sem stofnuninni finnst sanngjarnt og eðlilegt að fólk dveljist. Ég var að fara yfir umsögn Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um þetta ákvæði. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna leggst ekki gegn því að ríki séu með ákvæði af þessu tagi í sinni löggjöf. Hins vegar telur stofnunin ákvæðið eins og því er stillt upp í þessu frumvarpi ekki uppfylla lágmarksskilyrði samkvæmt í rauninni bara flóttamannasamningnum og þeim alþjóðalögum sem gilda um mannréttindi, ekki síst réttindi flóttafólks.

Komið er að lokaniðurstöðu Flóttamannastofnunar í tengslum við þetta ákvæði. Hún er svohljóðandi, með leyfi forseta:

„Hvað varðar það sjónarmið sem lagt er fram að það verði „sanngjarnt og eðlilegt“ fyrir umsækjandann að búa í þriðja landinu, hefur Flóttamannastofnunin stöðugt verið að hvetja til þess að merkingarbært samband eða tenging verði til staðar sem geri það eðlilegt og sjálfbært fyrir manneskju að sækja um hæli í öðru ríki. Sé lengd og tegund hverrar dvalar tekin með í reikninginn sem og þær tengingar sem byggjast á fjölskylduböndum eða öðrum nánum tengslum, þar á meðal þegar áunnin réttindi í ríkinu, eins og fyrri búseta eða langvinnar heimsóknir og bönd sem hafa með tungumál, menningu eða eitthvað svipað að gera, eykur það líkurnar á því að flutningarnir verði til langframa, bæði frá sjónarhóli einstaklingsins og þriðja landsins. Samband af því tagi myndi enn fremur draga úr hættunni á […]“ — því sem hér er þýtt sem óvenjulegum flutningum áfram til annars lands, sem er í rauninni kannski eðlilegra að þýða sem „óreglulegum flutningum“ áfram til annars lands, eða, eins og einhver myndi orða það: „ólöglegum“ — „draga úr hættunni á „sporbrautar“-kringumstæðum“, þ.e. kringumstæðum þar sem fólk fer í rauninni hring eftir hring í kerfinu og fær hvergi lausn sinna mála, „og ýta undir alþjóðlega samvinnu og skiptingu skylduverka í stað þess að ríki velti byrðinni sín á milli.“

Það sem Flóttamannastofnun er einmitt að segja hér er að það getur verið eðlilegt og sanngjarnt að einstaklingur fái vernd í einu ríki frekar en öðru. Hins vegar þá er tvennt sem Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna telur rétt að miða þá út frá, sem ekki liggur að baki því ákvæði sem lagt er til í frumvarpi hæstv. dómsmálaráðherra og félaga hans. Annars vegar er horft til möguleika einstaklingsins á að verða hluti af samfélaginu þar sem hann er. Hvers vegna? Bæði vegna þess að það eykur líkurnar á því að viðkomandi geti lifað mannsæmandi lífi en líka vegna þess að það eykur líkurnar á því að samfélagið njóti góðs af komu viðkomandi einstaklings. Þetta er svona gagnkvæmt. Þetta er gott mál fyrir alla.

Hitt sem Flóttamannastofnun leggur áherslu á og liggur ekki að baki ákvæðinu sem lagt er til í þessu frumvarpi sem við erum að ræða hér, er að grunnforsendan sé sú að einstaklingurinn fái vernd. Það sé grundvallarhugsunin að þú fáir einhvers staðar vernd. Grundvallarhugsunin að baki því ákvæði sem við erum að ræða hér, b-lið 8. gr. frumvarpsins, snýst um að geta vísað fólki eitthvert annað. Í raun má segja að frumvarpshöfundum sé nokkurn veginn sama hvert, bara þannig að það sé einhvern veginn hægt að sleppa við það að fá allt þetta fólk hingað frá Venesúela. Það er nákvæmlega það sem liggur þarna að baki, að hingað komi allt of stór hópur frá Venesúela. Hvernig getum við losnað við þau? Við getum ekki losnað við þau til Venesúela vegna þess að það vill svo til að þetta eru ekki efnahagslegir flóttamenn, alveg sama hversu oft hv. þm. Birgir Þórarinsson endurtekur það þá verður það ekki satt. Þannig að það er ekkert verið að vísa þeim þangað. En getum við ekki vísað þeim eitthvert annað? Og það er hugsunin að baki þessu frumvarpi, ekki sú að einstaklingur fái vernd og það sé tryggt og að við séum að sinna okkar alþjóðlegu skuldbindingum. Ekki sú að einstaklingur sæki um og fái vernd í ríki þar sem hann á mesta möguleika á að verða hluti af samfélaginu. Af einhverjum ástæðum valdi hann að koma til Íslands en ekki að fara til Chile, af einhverjum ástæðum er það og við verðum að horfa til þess. Það er það sem Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna er að segja: Jú, endilega setjið svona ákvæði en ekki svona. Og Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna sagði okkur og sagði meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar nákvæmlega hvernig ætti að setja svona ákvæði. Hlustaði meiri hluti allsherjar- og menntamálanefndar? Nei.