153. löggjafarþing — 61. fundur,  7. feb. 2023.

útlendingar.

382. mál
[01:18]
Horfa

Frsm. 3. minni hluta allsh.- og menntmn. (Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir) (P):

Herra forseti. Ég er ekki frá því að ég sé búin að fara nægilega í bili yfir b-lið 8. gr. og er að hugsa um að vinda mér í c-liðinn, sem er mitt annað uppáhaldsákvæði í þessu frumvarpi, „uppáhalds“ sannarlega innan gæsalappa. En þó, það er nefnilega nokkuð lögfræðilegt. Ég ætla að byrja á því að lesa upp úr núgildandi lögum þá grein sem verið er að breyta, þ.e. c-lið 8. gr. frumvarpsins.

Í 36. gr. grein laga um útlendinga, nr. 80/2016, segir, með leyfi forseta:

„Umsókn um alþjóðlega vernd skv. 37. gr. skal tekin til efnismeðferðar nema“ — ég ætla að hoppa hérna aðeins yfir. Það eru ákveðnar ástæður: — „[Nema] umsækjandi hafi komið til landsins að eigin frumkvæði eftir að hafa hlotið virka alþjóðlega vernd […]“, nema heimilt sé að krefja annað ríki sem tekur þátt í Dyflinnarsamstarfinu, sem sagt það á að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnislegrar meðferðar nema hægt sé að vísa viðkomandi eitthvert annað og vísa umsókninni frá, ekki taka hana til efnislegrar meðferðar.

Svo segir í 2. mgr. þessarar greinar, með leyfi forseta:

„Ef svo stendur á sem greinir í 1. mgr.“ — það má vísa þér eitthvert annað; það má vísa umsókninni frá og senda þig til Grikklands — „skal þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæla annars með því. Ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.“

Í c-lið 8. gr. frumvarpsins er lagt til að í stað 2. málsl. 2. mgr., sem ég ætla að lesa aftur fyrir ykkur, mér er mikið í mun að fólk haldi athygli gagnvart því sem ég er að segja — í stað setningarinnar: „Ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.“ Í staðinn fyrir þetta „koma þrír nýir málsliðir, svohljóðandi: Þá skal einnig taka umsókn til efnismeðferðar hafi umsækjandi ekki fengið endanlega niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 12 mánaða frá því að umsókn var lögð fram, enda hafi umsækjandi sjálfur, maki eða sambúðarmaki hans eða annar sem kemur fram gagnvart stjórnvöldum fyrir hans eða þeirra hönd ekki átt þátt í því að niðurstaða hafi ekki fengist innan tímamarka. Við mat á því hvort viðkomandi hafi borið ábyrgð á töfum á afgreiðslu máls skal m.a. líta til þess hvort viðkomandi hafi dvalist á ókunnum stað um tíma, framvísað fölsuðum skjölum eða gefið misvísandi upplýsingar um auðkenni sitt, ekki mætt í boðað viðtal eða læknisskoðun eða að öðru leyti ekki sýnt samstarfsvilja við meðferð, úrlausn eða framkvæmd máls. Teljist umsækjandi á einhverjum tíma hafa tafið mál sitt samkvæmt framangreindu á hann ekki rétt á efnismeðferð á grundvelli tímafrestsins í þessari málsgrein.“

Er þetta ekki bara nokkuð skýrt eins og það er í lögum í dag? Ég ætla bara að fá að endurtaka það eftir alla þessa langloku, með leyfi forseta:

„Ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.“ — Einfalt og gott.

Sambærileg ákvæði, ég ætla að byrja á að nefna það, til fróðleiks: Sambærileg ákvæði má finna t.d. í Evrópureglugerð — við erum svo mikið fyrir að samræma íslensk lög Evrópureglugerðum — sem gengur gjarnan undir nafninu Dyflinnarreglugerðin. Þar eru tímafrestir fyrir stjórnvöld að flytja fólk eftir að komist hefur verið að þeirri niðurstöðu að eitthvert annað ríki beri ábyrgð á umsókninni. Til þess hefur ríkið sex mánuði frá lokaniðurstöðu. Það eina sem rýfur þennan frest er ef viðkomandi lætur sig hverfa. Það er ekkert um það að hann tefji málið eða maki hans eða lögmaðurinn eða eitthvað eða að fluga flaug inn um gluggann, eins og er verið að leggja til í þessu frumvarpi. Nei, ef hann lætur sig hverfa þá lengist fresturinn sem stjórnvöld hafa til að flytja hann úr landi í 18 mánuði. Hvað gerist eftir 18 mánuði? Ríkið verður að gjöra svo vel að bera ábyrgð á umsókninni. Þetta kallast skilvirkni. — Ég óska eftir því að fara aftur á mælendaskrá.