153. löggjafarþing — 61. fundur,  7. feb. 2023.

útlendingar.

382. mál
[01:23]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P):

Herra forseti. Við skoðum útlendingamál óhjákvæmilega í samhengi við þann veruleika sem fólk er t.d. almennt að flýja eða þær aðstæður sem ríkið vill senda fólkið til baka í. Þess vegna byrjaði ég hér áðan að fara aðeins yfir samantekt Rauða krossins á aðstæðum flóttafólks í Grikklandi vegna þess að ólíkt því sem stjórnarliðar halda stundum fram þá er verndarkerfið í Grikklandi litlu skárra en það kerfi sem heldur utan um fólk meðan það bíður þess að umsókn um alþjóðlega vernd sé afgreidd þar í landi, einfaldlega vegna þess að gríska ríkið stendur bara ekki undir því álagi sem fylgir því að halda úti jafn umsvifamiklu kerfi. Þess vegna væri ágætt að snúa þessum einstefnuloka við sem íslensk stjórnvöld virðast vilja stilla þannig að allt fólk sem hafi drepið fæti í Grikklandi eigi helst bara að fara beinustu leið þangað.

Ég nefndi hér áðan að þótt grísk lög mæli fyrir um jafnan aðgang flóttafólks og grískra ríkisborgara að heilbrigðiskerfinu í Grikklandi þá bendir Rauði krossinn á að m.a. vegna niðurskurðar síðustu ára sé raunverulegt aðgengi flóttafólks miklu takmarkaðra þegar kemur að heilbrigðiskerfinu en innfæddra. Þá bætir nú ekki úr skák að það er mikill skortur á túlkaþjónustu sem gerir það að verkum að einstaklingar fá jafnvel oft ekki rétta greiningu og sjúkdómseinkenni eru vanmetin þannig að fólk er jafnvel ekki lagt inn á spítala þegar þörf er á. Þá hefur lyfjakostnaður aukist, við þekkjum það nú úr sparnaðarhandbókum ríkisstjórna að þá er kostnaði ýtt af ríkinu yfir á einstaklinga þannig að fólk þarf að standa straum af lyfjakostnaði í auknum mæli. Þetta kemur sérstaklega illa við sjúklinga með langvinna sjúkdóma. Svo er náttúrlega verulega takmarkaður aðgangur að geðheilbrigðisþjónustu, sem hlýtur að vera sérstakt áhyggjuefni þegar um er að ræða fólk sem er að flýja stríðsátök og ofbeldi, ýmiss konar persónulega misbeitingu, mansal og alls konar áföll sem fólk þyrfti að fá aðstoð við að vinna úr. Þær heimildir sem Rauði krossinn vísar í í þessari skýrslu sinni benda til þess að andlegri heilsu flóttafólks og umsækjenda um alþjóðlega vernd í Grikklandi hafi hrakað sérstaklega mikið á Covid-19 tímum. Þannig að Rauði krossinn segir, með leyfi forseta:

„Íslensk stjórnvöld geta ekki litið framhjá þeirri staðreynd að raunveruleikinn er sá að flóttafólk á í miklum erfiðleikum með að njóta fullnægjandi heilbrigðisþjónustu í Grikklandi og þetta staðfesta alþjóðlegar skýrslur …“

Þetta er veruleiki sem við þurfum að hafa í huga þegar stjórnvöld láta sér t.d. detta í hug að senda fólk eins og Hussein Hussein með valdi úr landi, fólk sem þarf stuðning, þarf aðgang að heilbrigðisþjónustu, eða bara þegar við erum að senda hvaða fólk sem er.