útlendingar.
Forseti. Við höldum áfram yfirferðinni í frumvarpi til laga um mannréttindasáttmála Evrópu. Ég hef fjallað hér um dómana sem vísuðu í mannréttindasáttmálann áður en hann var lögfestur. Hér segir, með leyfi forseta:
„Í dómi Hæstaréttar, sem birtist í dómasafni frá 1988, bls. 1532, var leyst úr því hvort lögmætt væri að setja það skilyrði fyrir að njóta leyfis til að aka leigubifreið að leyfishafi yrði að vera félagsmaður í tilteknu félagi bifreiðastjóra.“ — Hv. þm. Óli Björn Kárason var hérna í hliðarsal. Hann hefur örugglega mikinn áhuga á nákvæmlega þessum dómi. En með leyfi forseta held ég áfram:
„Var því haldið fram í málinu að slík skylduaðild að félagi væri meðal annars í andstöðu við ákvæði 73. gr. stjórnarskrárinnar og 11. gr. samningsins um verndun mannréttinda og mannfrelsis. Hæstiréttur hafnaði í dómi sínum að þessi skylda væri andstæð umræddri reglu stjórnarskrárinnar. Segir síðan í dóminum: „Áfrýjandi hefur ekki sýnt fram á, að ósamræmi sé milli 73. gr. stjórnarskrárinnar og þeirra ákvæða alþjóðasamþykkta, er hann vísar til og rakin eru í héraðsdómi, og myndi enda ekki sjálfkrafa hagga settum stjórnarskrárákvæðum.“
Í þessum dómum reyndi á röksemdir um að íslenskur landsréttur samrýmdist ekki ákvæðum mannréttindasáttmála Evrópu. Hæstiréttur hefur ýmist hrundið þeim rökum með vísan til þess að ekkert slíkt ósamræmi væri fyrir hendi eða hafnað kröfum, sem voru byggðar á slíkum röksemdum, á þeirri forsendu að jafnvel þótt ósamræmi væri milli íslensks landsréttar og ákvæða sáttmálans breytti það ekki gildi settra laga eða eftir atvikum stjórnskipunarlaga hér á landi. Í einu tilviki, áðurnefndum dómi frá 1970, var þó niðurstaða í minnihlutaatkvæði byggð á því að skýra yrði vafaatriði í íslenskum lögum meðal annars til samræmis við ákvæði mannréttindasáttmálans. Á síðustu árum hefur hins vegar orðið talsverð breyting á dómaframkvæmd í þessum efnum, eins og eftirfarandi dæmi sýna:
„Í dómi Hæstaréttar, sem birtist í dómasafni frá 1990, bls. 2, reyndi enn á þá aðstöðu að þar fyrir dómi var krafist ómerkingar héraðsdóms í refsimáli á þeirri forsendu að forstöðumaður héraðsdómstólsins, þar sem var leyst úr málinu, hafi einnig verið lögreglustjóri í sama umdæmi og þar með yfirmaður lögreglumanna sem rannsökuðu málið á fyrstu stigum. Var krafa um ómerkingu líkt og í fyrri tilvikum byggð meðal annars á því að þessi háttur bryti gegn rétti manns skv. 6. gr. samningsins um verndun mannréttinda og mannfrelsis til að fá leyst úr máli sínu fyrir óvilhöllum dómara. Í dómi Hæstaréttar er minnst á áðurnefnda dóma frá árunum 1985 og 1987 þar sem talið hafði verið að 2. gr. stjórnarskrárinnar stæði því ekki í vegi að einn og sami maður geti í senn farið með dómstörf og lögreglustjórn, en tekið er fram að þetta samrýmist illa viðhorfum í ríkjum sem byggi um annað á svipuðum réttarhugmyndum og séu við lýði á Íslandi. Er vikið þessu næst að ákvæðum 1. mgr. 6. gr. samningsins og því að Ísland hafi fullgilt samninginn og þar með gengist undir að lúta reglum hans. Þess er minnst að við fullgildingu hafi ríkisstjórnin talið að íslensk lög væru í samræmi við mannréttindasáttmálann, en síðan hafi þó mörg ákvæði hans verið skýrð nánar í úrlausnum mannréttindanefndar og Mannréttindadómstóls Evrópu. Meðal annars hafi þeir menn, sem voru sakfelldir með fyrrnefndum dómum frá 1985 og 1987, kært íslenska ríkið fyrir brot á ákvæðum 6. gr. samningsins og mannréttindanefndin ályktað einróma út af annarri kærunni að um slíkt brot hafi verið að ræða. Því kærumáli hafi mannréttindanefndin skotið til mannréttindadómstólsins, en eftir það hafi íslenska ríkið gert sátt við kærandann, og hafi þar verið byggt á því að ríkið hafi ráðið bót á kæruefninu með setningu laga um aðskilnað dómsvalds og umboðsvalds í héraði, nr. 92/1989.“
Ég bið forseta vinsamlegast um að setja mig á mælendaskrá aftur til að halda áfram með þessa yfirferð.