útlendingar.
Frsm. 3. minni hluta allsh.- og menntmn. (Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir) (P):
Herra forseti. Ég er loksins komin á c-lið 8. gr. frumvarpsins, sem er eitt fáránlegasta ákvæðið í þessu frumvarpi og þá er standardinn orðinn ansi lágur. Í þessu ákvæði er ýmislegt lagt til sem maður kemur kannski ekki alveg auga á strax við lesturinn. Þarna er verið að fikta í mikilli framfarareglu sem sett var með lögunum árið 2016. Þá var ákveðið, í kjölfar þverpólitískrar vinnu sem var farið í í kjölfar úttektar sem gerð var á lagaumhverfi útlendingamála, sérstaklega lagalegrar stöðu útlendinga frá ríkjum utan EES, og það voru allir sammála um það, alveg sama hvar borið var niður, að málsmeðferð í málum er varða alþjóðlega vernd væri of löng. Þarna höfðu komið allnokkur dæmi í fjölmiðlum um einstaklinga sem höfðu verið hér á landi árum saman án þess að það væri einu sinni búið að komast að niðurstöðu um hvort það ætti yfir höfuð að skoða umsóknina eða ekki. Við erum að tala um þrjú, fjögur ár og fólk hafði aldrei verið spurt af hverju það flúði heimaríkið vegna þess að íslensk stjórnvöld voru ekki búin að komast að niðurstöðu um hvort þau ætluðu að spyrja viðkomandi að því eða ekki. Það var sem sagt verið að velta því fyrir sér hvort það ætti að vísa málinu frá á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Því var ákveðið í þverpólitískri sátt árið 2016 að setja ákveðin tímamörk í lögin. Þessi tímamörk eru varðandi þessi svokölluðu Dyflinnar- og statusmál, eða Dyflinnar- og verndarmál eins og þau eru kölluð. Þetta er í 2. mgr. 36. gr. laganna. Hvað á að gerast eftir þennan tímafrest? Það var spurningin. Það sem þótti eðlilegast og nærtækast að myndi gerast var annars vegar það að ef einstaklingur er í Dyflinnar- eða verndarferli þá skuli að 12 mánuðum liðnum umsóknin tekin til efnismeðferðar hér ef það er ekki búið að afgreiða málið, svo fremi að tafir á meðferð málsins séu ekki á ábyrgð umsækjandans sjálfs. Þetta var varnaglinn og hefur verið varnaglinn alla tíð síðan.
Það hefur borið nokkuð á því að Útlendingastofnun líti svo á að einstaklingur hafi tafið málið sitt sjálfur, t.d. með því að framvísa fölsuðum skilríkjum, með því að mæta ekki í boðað viðtal einu sinni eða tvisvar og af ýmsum öðrum ástæðum, t.d. með því að vera með lögmann sem er rosalega erfiður og leiðinlegur, sem er alltaf að skila greinargerðum of seint, eftir frest og er með eitthvert vesen. Þá er náttúrlega augljóst að umsækjendur tafði málið sitt sjálfur. En Útlendingastofnun hefur jafnan verið gerð afturreka með slíkar kenningar þar sem það eru augljóslega ekki, ég held að það sé hverjum manni ljóst, tafir á ábyrgð umsækjandans sjálfs. Það að einstaklingur framvísi fölsuðum skilríkjum er alþekkt í þessum bransa þar sem það er bara mjög algengt að fólk á flótta eigi erfitt með að útvega sér skilríki, ég tala nú ekki um í ríkjum þar sem búið er að sprengja allt í tætlur, þá labbar maður nú kannski ekki beinlínis bara inn á næstu sýslumannsskrifstofu og sækir um vegabréf, það er bara svoleiðis, vegna þess að við erum búin að byggja upp kerfi sem er þannig að ef þú ert flóttamaður sem kemur hingað og þú átt rétt á alþjóðlegri vernd þá færð þú vernd. En þú mátt ekki koma hingað. Það eru engar, ég endurtek, engar löglegar leiðir fyrir einstakling að koma til Íslands og sækja um hæli. Engar. Þess vegna er það þannig í lögum, og það er í 33. gr. flóttamannasamningsins sjálfs, að einstaklingi sem telst vera flóttamaður skuli ekki refsað fyrir að koma á fölsuðum skilríkjum vegna þess að það er alþekkt að oft hefur fólk ekki aðra kosti. Það að telja þetta vera tafir á meðferð máls á ábyrgð umsækjanda sjálfs er auðvitað gjörsamlega fráleitt. Hér er verið að leggja til að það verði lögfest vegna þess að Útlendingastofnun hefur verið gerð afturreka með það fráleita mat sitt. Þetta er bara eitt dæmi af mörgum, ég er rétt að byrja, vegna þess að c-liður 8. gr. þessa frumvarps er sennilega það ákvæði sem er smekkfyllst af bulli og vitleysu. — Ég óska eftir að fá að fara aftur á mælendaskrá.