153. löggjafarþing — 61. fundur,  7. feb. 2023.

útlendingar.

382. mál
[01:39]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P):

Herra forseti. Áfram varðandi þetta stóra viðfangsefni alþjóðasamfélagsins um að finna einhverja leið til að deila með sanngjörnum hætti byrðunum af vanda fólks á flótta. Þetta er eitthvað sem skiptir máli að við náum almennilegum tökum á til langs tíma vegna þess að það er ekkert sem bendir til annars en að næstu áratugir verði tími mikils fólksflótta þegar t.d. áhrifa loftslagsbreytinga fer að gæta í auknum mæli og fólk þarf að flýja náttúruhamfarir eða átök sem loftslagsbreytingar hafa í för með sér. Þess vegna þarf Ísland að fara að venda kvæði sínu í kross og hætta að hagnýta sér t.d. samevrópska kerfið þannig að við öxlum sem minnsta ábyrgð en veltum sem mestu yfir á þau ríki sem mest gera nú þegar.

Svo langar mig að nefna samþykkt Sameinuðu þjóðanna um málefni flóttafólks, sem á ensku heitir, með leyfi forseta „Global Compact on Refugees“, sem var samþykkt á þingi Sameinuðu þjóðanna í desember 2018 sem tilraun til að skapa einhvern pólitískan grundvöll fyrir samvinnu ríkja um það að taka á stöðu flóttafólks yfir heim allan. Það eru kannski fjórir meginþættir í þessum samningi sem sérstök áhersla er lögð á og tengjast því sem ég var að ræða hér um Grikkland í minni síðustu ræðu. Í fyrsta lagi að létta þrýstingi af þeim ríkjum þar sem stærstu hópar flóttafólks eru búsettir. Það er meira en að segja það að halda utan um hundruð þúsunda eða jafnvel milljónir flóttafólks innan ríkis, hvað þá ef, eins og er nú í mörgum tilfellum, flóttafólk streymir frá ríkjum sem eru nágrannar þeirra. Þetta eru ekki alltaf ríkustu löndin, þetta eru ekki burðugustu ríkissjóðirnir til að halda utan um þessa nauðsynlegu þjónustu.

Í öðru lagi er lögð mikil áhersla á að auka möguleika flóttafólks til að geta verið sjálfstætt í sínu lífi, geta t.d. stundað atvinnu eða framfleytt sér á einhvern hátt. Það þjónar náttúrlega fyrra markmiðinu líka ágætlega; þyngslin í félagslega kerfinu, sem þarf að halda í kringum móttöku flóttafólks, minnka eftir því sem fólki er gert auðveldara að taka fullan þátt í samfélaginu, á vinnumarkaði. Þarna komst ég í fyrstu tvo þættina. En við sjáum náttúrlega síðan hliðstæðuna við þann hóp sem við vorum að ræða hér fyrr í dag, fólkið sem hefur hlotið endanlega synjun umsóknar um alþjóðlega vernd hér á landi en er innlyksa og Rauði krossinn mælir með að fái t.d. bráðabirgðaatvinnuleyfi til að þau geti verið, ekki hluti af félagslega kerfinu heldur bara hluti af almennu samfélagi.