útlendingar.
Forseti. Ég ætla að halda áfram með yfirferð á greinargerð með frumvarpi um mannréttindasáttmála Evrópu. Ég var að fara hérna yfir dóm þar sem er verið að endurskoða eldri dóma eftir að íslenska ríkið hafði verið kært fyrir brot á ákvæðum og fyrir mannréttindanefnd og Mannréttindadómstól sem íslenska ríkið gerði sátt við. Því er ný afstaða Hæstaréttar á Íslandi vegna þeirrar þróunar mála, með leyfi forseta, þessi:
„Í dómi Hæstaréttar var síðan vikið að því að í stjórnarskránni væri byggt á þrígreiningu ríkisvaldsins, að sögulegar og landfræðilegar aðstæður, sem hafi búið því að baki að sömu mönnum hafi að mestu verið falið bæði dómsvald og umboðsvald utan Reykjavíkur, skipti orðið minna máli, að lög hafi verið sett um aðskilnað dómsvalds og umboðsvalds í héraði, að íslenska ríkið hafi skuldbundið sig að þjóðarétti til að virða mannréttindasáttmála Evrópu og að mannréttindanefnd Evrópu hafi ályktað í fyrrnefndu kærumáli að Ísland hafi brotið þá skuldbindingu, en til stæði að ljúka málinu með sátt. Í dóminum var svo vísað til þess að samkvæmt þágildandi réttarfarslögum hafi dómara borið að víkja sæti í máli ef hætta var á að hann gæti ekki litið hlutdrægnislaust á málavöxtu. Að vísu bendi ekkert til þess að dómarafulltrúinn, sem leysti úr þessu máli í héraði, hafi litið hlutdrægt á málavöxtu, en fallast verði á það með mannréttindanefnd Evrópu að almennt sé ekki næg trygging fyrir óhlutdrægni í dómstörfum í sakamálum þegar dómari vinni um leið að lögreglustjórn eins og var í þessu máli. Segir loks í dómi Hæstaréttar: „Með tilliti til þess sem rætt hefur verið ber nú að skýra fyrrgreind lagaákvæði þannig að sýslumanninum í Árnessýslu og fulltrúa hans, sem kvað upp héraðsdóminn, hafi borið að víkja sæti í máli þessu“ og var dómurinn ómerktur af þessum sökum. Þess skal getið að í kjölfarið gengu dómar í mörgum sambærilegum málum fyrir Hæstarétti þar sem niðurstaðan var á sama veg.“
Mjög áhugavert með tilliti til ýmissa nýlegra mála. Hérna er verið að fjalla um það hvernig dómari sem getur skoðast sem hlutdrægur þar sem hann sinnir málinu á nokkrum stigum málsins þrátt fyrir að ekki sé augljóst að hann hafi sýnt hlutdrægni, það er samt eitthvað sem við þurfum að hafa áhyggjur af. Þar má telja til kannski tvö nýleg mál sem gætu fallið undir sambærilegt álit. Það er annars vegar kosningamálið hérna í síðustu kosningum þar sem lögfræðingar unnu að úrlausn þess máls bæði hjá landskjörstjórn og hjá þinginu, unnu að málinu sem ráðgjafar og þess háttar að ákveðinni niðurstöðu á fleiri stöðum en einum. Einnig mætti benda á hlutdrægni fjármálaráðherra við sölu á Íslandsbanka, sem ætti öllum að vera augljós. Hann getur augljóslega ekki selt föður sínum hlut í ríkisbanka. Það ætti að vera rosalega augljóst bara miðað við þetta dæmi að sá sem er að sinna ákveðnu löggæslustarfi getur ekki síðan verið dómari í sama máli. Það er ákveðin hlutdrægni þarna á milli. Það eru ákveðin hagsmunatengsl gagnvart eigin ákvörðunum sem rannsakanda í máli. Þú dæmir að sjálfsögðu ekki í því máli líka. Þú átt erfitt með að endurskoða þær ákvarðanir sem þú tókst og voru rangar, út frá hlutlægum sjónarmiðum. — En við förum betur yfir þetta í fleiri atriðum hérna, ef forseti vildi vinsamlegast setja mig aftur á mælendaskrá.