útlendingar.
Frsm. 3. minni hluta allsh.- og menntmn. (Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir) (P):
Herra forseti. Ég er hérna í „uppáhaldsgreininni“ minni í lögunum. Hún er svo mikið uppáhalds að hún breytir raunverulegu uppáhaldsákvæði mínu í lögunum sem ég hef gerst svo fræg að skrifa heila fræðigrein um, sem áhugasamir geta kynnt sér ef þeir vilja, birt í Úlfljóti, tímariti laganema, fyrir nokkrum árum síðan.
Ég ætla bara að byrja á einum þætti. Það er nefnilega dálítið margt sem leynist í þessu klasaklúðri sem þessi tillaga er. Hún er svohljóðandi, svo ég fari aftur yfir það svo fólk geti notið þessa klasaklúðurs hérna með mér, ákvæðið sem í dag er mjög skýrt og einfalt og segir:
„Ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.“
Nei. Við skulum bara fara yfir þetta lið fyrir lið eins og það er í frumvarpinu, með leyfi forseta:
„Þá skal einnig taka umsókn til efnismeðferðar hafi umsækjandi ekki fengið endanlega niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 12 mánaða frá því að umsókn var lögð fram …“
Þarna get ég strax staldrað við. Nú, hver er munurinn? Í núgildandi lögum segir: „Ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum … “ Í framkvæmd hefur þetta verið túlkað sem svo að 12 mánuðirnir sem stjórnvöld hafa til að afgreiða málið séu frá því að umsækjandi sækir um þangað til hann hefur verið fluttur úr landi. Við skulum hafa barn í huga til að átta okkur á því hvaða þýðingu þetta hefur. Samkvæmt nýju tillögunni mælist þetta frá því að umsókn er lögð fram þangað til endanleg niðurstaða hefur fengist á stjórnsýslustigi. Hverju breytir þetta? Jú, þetta breytir því að ef stjórnvöld ná að klára málið innan 12 mánaða, kærunefnd útlendingamála kveður upp úrskurð sinn eftir 11 mánuði og þrjár vikur, þá hefur lögreglan allan þann tíma sem hún vill, allan tíma í heiminum til að koma fólki úr landi og fólkið öðlast engan rétt þrátt fyrir að bera enga ábyrgð á þeim töfum.
Segjum sem svo að hér komi upp heimsfaraldur, segjum sem svo að lögreglan sé bara undirmönnuð og hafi ekki tíma til að sinna þessu og fólk bíður í óvissu í hálft ár, eitt ár, tvö ár. Þá öðlast það engan rétt samkvæmt þessu ákvæði eins og breytingin er lögð til. Þetta þýðir vitanlega að það er engin pressa, það er engin pressa á stjórnvöld að flytja fólk úr landi þegar búið er að komast að niðurstöðu vegna þess að viðkomandi öðlast engan rétt. Þetta er fyrsta breytingin sem þarna er verið að gera. Það sem er svo skondið er að í greinargerð með ákvæðinu er talað um að hér sé verið að samræma ákvæðið við það mat sem er í 74. gr. Þetta er rétt. Það sem er hins vegar svo kjánalegt er að þetta ósamræmi hefur verið gagnrýnt í hina áttina. Það hefur verið gagnrýnt að 74. gr. sé ekki í samræmi við túlkunina á þessu ákvæði. Af hverju breyta stjórnvöld ekki 74. gr. til samræmis við þetta? Jú, vegna þess að stjórnvöld eru ekki mikið fyrir það að fólk öðlist einhvern rétt, vegna þess að það að fólk hafi einhvern rétt hefur eitthvað svo rosalega mikið aðdráttarafl og það ákveða allir að koma til Íslands í staðinn fyrir að fara til annarra ríkja af því að hér er 12 mánaða fresturinn mældur frá þessu tímamarki til þessa tímamarks en ekki frá þessu til þessa — eins og flóttafólk sem er að flýja stríð geri sér nokkra grein fyrir því, einhverjum smáatriðum í lögum. Það er bara ekki svoleiðis.
Það eru ýmsir hlutir sem fara á flakk, það eru ýmsar sögur sem fara á flakk. Ég held að ég sé alveg að hringja bjöllum hjá heilmörgum hlustendum þegar ég nefni sögu sem fór á flakk um heiminn um það að hér fengju menn, hvað var það? 4.000 dollara fyrir að giftast íslenskri konu. Alls konar sögur sem fara á flakk. Og það hafa náttúrlega einhverjir heyrt af einhverjum svona sögum sem hafa farið á flakk þar sem á að vera rosalegt aðdráttarafl til þess að fara til Íslands. Ég get alveg sagt ykkur að það eru ýmsar flökkusögur sem fela í sér aðdráttarafl til Íslands og þær eru ekki einu sinni sannar. Þannig að það að einhverjir frestir gildi frá einum degi til einhvers annars er sannarlega ekki það sem er að draga fólk hingað til lands. — Ég er rétt búin með innganginn og þá er tíminn uppurinn. Ég mun sannarlega leggja fram frumvarp til laga um breytingu á lögum um þingsköp Alþingis til að laga þetta. Ég óska eftir því að vera sett aftur á mælendaskrá.