dagskrártillaga.
Forseta hefur borist eftirfarandi dagskrártillaga og eftirfarandi bréf, sem hljóðar svo:
„Undirritaður gerir það að tillögu sinni, í samræmi við 1. mgr. 77. gr. laga um þingsköp Alþingis, að á dagskrá næsta fundar verði þau dagskrármál sem forseti Alþingis leggur til, að því undanskildu að út af dagskrá fundarins verði tekið 382. mál, frumvarp til laga um breytingu á lögum um útlendinga (alþjóðleg vernd).“
Þá segir í niðurlagi bréfsins:
„Þess er óskað að tillagan verði borin upp til afgreiðslu í samræmi við áðurnefnda grein þingskapa.“
Undir bréfið ritar Andrés Ingi Jónsson Þessi tillaga verður borin upp til atkvæða í upphafi næsta þingfundar.