Störf þingsins.
Herra forseti. Núna liggur það fyrir sem við vissum sjálfsagt flest að myndi gerast, Seðlabankinn hefur hækkað stýrivexti í enn eitt skiptið. Að þessu sinni er það alveg kýrskýrt hjá bankanum að stjórnvöld bera beina ábyrgð á hækkuninni nú en einnig er vísað í nýgerða kjarasamninga í rökstuðningi. Við í þessum sal getum að sjálfsögðu haft skoðun á því hvernig aðilar vinnumarkaðarins semja sín á milli en það er ekki okkar hlutverk að segja þeim fyrir verkum. Okkar hlutverk í baráttunni gegn verðbólgunni og háum vöxtum eru ákvarðanir sem við tökum í þessum sal. Hér getum við haft bein áhrif á ríkisfjármálin og beitt þeim með skynsamlegum hætti fyrir fólkið í landinu. Því tækifæri var hins vegar glutrað niður fyrir áramót í fjárlagagerðinni þegar ríkisstjórnarflokkarnir lögðust gegn öllum tilraunum og varnaðarorðum okkar í Viðreisn og tillögum um að auka aðhaldið og stöðva stjórnlausan útgjaldavöxtinn. Fjölmargar tillögur voru lagðar fram sem hefðu unnið með Seðlabankanum í þessu verkefni. Allar voru þær felldar, sem var sagt vera af prinsippástæðum. Þess í stað, eins og seðlabankastjóri orðaði það, hefur aðhald í ríkisfjármálum minnkað frá því sem það var áður. Þetta eru auðvitað hábölvað fyrir heimilin í landinu, blóðugt fyrir fyrirtækin í landinu og alvarlegur áfellisdómur yfir ríkisstjórninni. Í hvaða stöðu erum við í þessari baráttu þegar æðstu ráðamenn Seðlabankans segja það berum orðum að ríkisstjórnin sé stödd í öðrum veruleika en bankinn og segja fullum fetum með fótboltalíkingu að hún hafi spilað sóló og skorað sjálfsmark. Það er auðvitað ekkert nýtt að það vanti stundum jarðtengingu í Stjórnarráðið en að fá þessa faglegu hagfræðilegu greiningu frá Seðlabankanum á ríkisstjórninni er óneitanlega svolítið kröftugt. Við skulum hafa það í huga næst þegar við verslum í matinn eða tökum bensín að landinu er stjórnað af fólki sem hefur með aðgerðaleysi beinlínis unnið gegn því að þessar vörur lækki. Við ættum líka að muna þegar viðskiptabankarnir hækka vextina á húsnæðislánunum að sú hækkun skrifast á stjórnarflokkana. Við erum jú með ríkisstjórn (Forseti hringir.) sem er stödd í öðrum veruleika en við hin. Hún spilar sóló og skorar sjálfsmörk. (Forseti hringir.) Hún er að tapa leiknum af því að hún ræður ekki við verkefnið.