Störf þingsins.
Herra forseti. Í fjárlagafrumvarpi fyrir 2023 samþykkti Alþingi 750 millj. kr. viðbótarframlag til að fjármagna fleiri liðskiptaaðgerðir til að vinna niður biðlista utan sjúkrahúsa. Á Íslandi er til staðar sjúkratryggingakerfi þar sem notendum heilbrigðiskerfisins er tryggð nauðsynleg heilbrigðisþjónusta án tillits til efnahags. Markmið kerfisins er að setja notanda kerfisins í fyrsta sæti þar sem fjármagnið fylgir notandanum en ekki veitanda þjónustunnar. Þannig eiga þeir sem þurfa á heilbrigðisþjónustu að halda að geta fengið viðeigandi þjónustu innan ásættanlegs tíma. Í staðinn hafa óskýr réttindi sjúkratryggðra þar sem ekki er samið um alla framkvæmd heilbrigðisþjónustu leitt af sér langa biðlista og búið til tvöfalt heilbrigðiskerfi þar sem þeir sem hafa efni á geta borgað sig fram fyrir röðina og fengið nauðsynlega þjónustu gegn hærra gjaldi. Það á m.a. við um liðskiptaaðgerðir en fjöldi þeirra sem hafa borgað fyrir þær beint eða leitað bóta meina sinna erlendis hefur stóraukist á síðustu árum. Þannig fer fólk fram hjá sjúkratryggingunni með því að borga allan kostnað úr eigin vasa eða nýtir reglugerð um rétt sjúklinga innan aðildarríkja EES-samningsins til að fá endurgreiðslu kostnaðar frá Sjúkratryggingum vegna heilbrigðisþjónustu erlendis, sem er gríðarlega kostnaðarsamt fyrir ríkið. Eftir sitja svo þeir sem ekki hafa tök á því að borga sjálfir eða fara erlendis í meðferð. Það er til mikils að vinna fyrir Sjúkratryggingar að tryggja réttindi sjúkratryggðra svo að allir sem þurfa á heilbrigðisþjónustu að halda geti fengið viðeigandi þjónustu innan ásættanlegs tíma og niðurgreidda af Sjúkratryggingum.
Forseti. Það er brýnt að fljótt verði samið um framkvæmd þessara aðgerða, vinna að samningum við frjáls heilbrigðisfyrirtæki og fjölga liðskiptaaðgerðum fyrir þann fjölda sem þjáist í biðinni, sem allra fyrst.