153. löggjafarþing — 63. fundur,  8. feb. 2023.

Störf þingsins.

[15:37]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V):

Herra forseti. Með fjárlögum ársins 2023 sló ríkisstjórnin enn eitt Íslandsmetið í eyðslu, skilaði enn og aftur fjárlögum sem auka ríkisútgjöld um tugi milljarða og halla. Í kjölfarið hækkaði verðbólga í janúar í 9,9% hér á landi, þvert á þróun annars staðar í Evrópu. Um þessa stöðu hefur ríkt nokkuð hávær þögn á stjórnarheimilinu ef frá eru taldar tilraunir til að koma sökinni yfir á almenning í formi skilaboða um að fólk eyði bara miklu, sé ekki að hjálpa, skilji ekki vandann, skilji ekki að við erum öll í þessu saman. Málið er að við erum ekki öll í þessu verkefni saman að hafa hemil á verðbólgunni sem er, svo vitnað sé í orð hagfræðingsins Miltons Friedmans, einn helsti skaðvaldur í hverju þjóðfélagi. Friedman hló að þeirri fullyrðingu að neyslu almennings væri um að kenna eða launþegahreyfingunni eða fyrirtækjum. Stjórnvöld beri ábyrgðina og helsta verkefni þeirra á tímum sem þessum sé að hafa hemil á ríkisútgjöldum, að eyða ekki um efni fram. Með stýrivaxtahækkun Seðlabankans í dag standa meginvextir bankans í 6,5%. Þetta eru áttföldun frá því í maí 2021, nokkuð sem er farið að þyngja róðurinn verulega hjá fjölmörgum heimilum og fyrirtækjum landsins. Hlutverk Seðlabankans er að hafa hemil á verðbólgu með vaxtaákvörðunum. Þetta er í raun eini bolti bankans í þessari keppni en yfirstandandi keppnistímabil í baráttunni við þennan landsins forna fjanda hefur nú staðið í u.þ.b. eitt og hálft ár. Ríkisstjórnin hefur töluvert fleiri bolta til að nota en gallinn er að hún kom einfaldlega illa undirbúin til leiks. Undirbúningstímabilið var illa nýtt, leikskipulagið er lélegt, samspilið svona og svona og niðurstaðan eftir því. Boltarnir detta dauðir niður eða enda í eigin marki. Og aðhald í ríkisfjármálum komst ekki einu sinni í lið ríkisstjórnarinnar.

Herra forseti. Ég lýsi eftir afreksstefnu gegn verðbólgu og samhentu, vel völdu liði sem á séns í að vinna þessa keppni fyrir okkur.