Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Mig langar til að byrja á því að taka undir orð hv. þm. Þórunnar Sveinbjarnardóttur áðan.
En að öðru. Út er komin skýrsla sem hefur að geyma stjórnsýsluúttekt ríkisendurskoðanda á lagaframkvæmd stjórnsýslu og eftirlits á sjókvíaeldi hér við land en stjórnsýsluúttektin var gerð að beiðni matvælaráðherra. Niðurstöður skýrslunnar koma ekki á óvart en það eru þó um leið ákveðin vonbrigði að fá það staðfest hversu illa hefur gengið að byggja upp umgjörð og stjórnsýslu utan um greinina. Á vorþingi 2019 var lagaramminn uppfærður og var lagt upp með það að efla frekari umgjörð um sjálfbærni fiskeldis til framtíðar. Í meðferð þingsins var byggt enn betur undir kröfur um vernd villtra nytjastofna ásamt því að gætt yrði að umhverfisvernd með mótvægisaðgerðum og ströngu eftirliti. Fiskeldi er vaxandi atvinnugrein og getur skipt sköpum fyrir okkur sem þjóð en mikilvægt er að setja skýrt og sanngjarnt regluverk í kringum það. Aðeins þannig náum við fram þeim markmiðum að greinin verði sterk og öflug á sama tíma og við tryggjum sjálfbæra þróun og vernd lífríkisins.
Virðulegi forseti. Undirrituð hefur ítrekað lagt fram tvær þingsályktunartillögur sem snúa að fiskeldi. Önnur snýr að því að bæta laga- og reglugerðaumhverfi sjókvíaeldis með hliðsjón af gjaldtöku af greininni, endurskoðun sem felur í sér heildarbreytingu á gjaldtöku ríkis og sveitarfélaga af fiskeldi og skýrari heimildir um töku gjalda til að standa undir nauðsynlegri þjónustu ríkis og sveitarfélaga af sjókvíaeldi. Í skýrslu ríkisendurskoðanda eru sterkar ábendingar um að mikilvægt sé að þessi endurskoðun fari þegar fram. Hins vegar lagði ég fram tillögu um eignarhald í fiskeldi sem hefur það að markmiði að koma fram með tillögur um hvernig takmarka megi samþjöppun eignarhalds á laxeldisleyfum og takmarka eignarhald erlendra aðila á laxeldisleyfum líkt og gert er í sjávarútvegi. Eignarhald laxeldisfyrirtækja á Íslandi hefur þróast þannig að mikil samþjöppun hefur átt sér stað sem getur leitt til þess að fáein fyrirtæki verði alls ráðandi.
Virðulegi forseti. Ég held að við náum ekki hámarksábata úr fiskeldinu nema hafa sterka umgjörð og eftirlit með því.