153. löggjafarþing — 63. fundur,  8. feb. 2023.

útlendingar.

382. mál
[16:31]
Horfa

Frsm. 3. minni hluta allsh.- og menntmn. (Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir) (P):

Forseti. Við vitum öll hversu mikilvæg mannréttindi eru, ekki eitt okkar hérna inni myndi vilja skerða okkar eigin mannréttindi eða ganga gegn jafnrétti. Við viljum öll geta leitað réttar okkar fyrir óvilhöllum dómstólum því, með leyfi forseta: „Allir skulu vera jafnir fyrir lögum og njóta mannréttinda án tillits til kynferðis, trúarbragða, skoðana, þjóðernisuppruna, kynþáttar, litarháttar, efnahags, ætternis og stöðu að öðru leyti“, svo ég vitni í sjálfa stjórnarskrá lýðveldisins Íslands. En til hvers er stjórnarskráin? Með leyfi forseta:

„Stjórnarskrá hefur að geyma helstu meginreglur um stjórnskipulag ríkis. Þar er að jafnaði að finna ákvæði um meðferð ríkisvalds, hlutverk helstu handhafa þess og samspil þeirra á milli, auk ákvæða um ýmis grundvallarréttindi borgaranna í samskiptum við ríkisvaldið og hömlur sem lagðar eru við því að á þessi réttindi sé gengið.“

Samt hefur það ítrekað gerst á undanförnum árum að gengið hefur verið á mannréttindi fólks. Ráðherrar hafa ítrekað verið fundnir sekir um brot á jafnréttislögum og pólitískt skipaðir dómarar hafa valdið því að heilt nýtt dómstig hefur verið í uppnámi í mörg ár. Hvernig getur það gerst? Jú, því ráðherrar og þingmenn eru fólk og ekkert okkar er fullkomið. Það er hvorki ásökun né afsökun heldur einfaldlega staðreynd sem ætti að hvetja okkur til þess að gera betur í dag en í gær. Við verðum því að spyrja okkur þeirrar stóru spurningar: Erum við að gera það hér? Erum við að taka skref áfram eða aftur á bak? Drögum andann djúpt og lítum inn á við. Erum við að gera betur með því að takmarka möguleika fólks til að færa rök fyrir máli sínu gagnvart stjórnvöldum með því að svipta fólk grunnþjónustu og lífsviðurværi fyrir að mæta ekki í boðað viðtal, með því að leyfa stjórnvöldum að kalla eftir heilbrigðisupplýsingum einstaklinga án þeirra samþykkis? Munum við á morgun enn vera jöfn fyrir lögum og njóta mannréttinda án tillits til þjóðernis eða litarháttar? Það er ekki víst ef marka má umsagnir aðila á borð við Barnaheill, landlækni, Hafnarfjarðarbæ, Íslandsdeild Amnesty International, Kvenréttindafélag Íslands, Þroskahjálp, Læknafélagið, mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu Reykjavíkur, Mannréttindaskrifstofu Íslands, Mannréttindastofnun Háskóla Íslands, presta innflytjenda og flóttafólks, Samfés, Samtökin '78, Rauða krossinn á Íslandi og UNICEF, aðila sem við tökum jafnan mark á, aðila sem við hlustum á, samtök sem hæstv. forsætisráðherra Íslands telur rétt að hlusta á, a.m.k. þegar hún er í stjórnarandstöðu.

Undanfarna daga höfum við Píratar ítrekað bent meiri hlutanum á allar neikvæðu umsagnirnar þar sem fram koma athugasemdir eins og í umsögn Rauða krossins á Íslandi, með leyfi forseta:

„Er hér raunar lagt til að börn missi rétt til efnismeðferðar ef foreldrar þess eða umsjónarmenn teljast vera valdir að töfum. Hingað til hafa börn verið talin eiga sjálfstæðan rétt …“

Eða úr umsögn Mannréttindastofnunar Háskóla Íslands, með leyfi forseta:

„Hvorki virðist vísað til ákvæða stjórnarskrár né mannréttindasáttmála Evrópu (MSE) í athugasemdunum. Verður að telja þetta afar óheppilegt. Efni frumvarpsins varðar með augljósum hætti mannréttindi umsækjenda um alþjóðlega vernd.“

Vegna þessara athugasemda og fjölmargra annarra hafa Píratar biðlað til meiri hlutans á Alþingi, til þingmanna Sjálfstæðisflokksins, Framsóknar og Vinstri grænna, að útskýra mál sitt hérna í ræðustóli Alþingis. Hvers vegna leggið þið til að við samþykkjum frumvarp sem lög í þessu landi sem gengur svona á réttindi fólks? Hvers vegna er það ómálefnalegt að leggja til að málið verði sent aftur í nefnd til frekari skoðunar? Af hverju segið þið þvert nei þegar við biðjum um óháð mat á því hvort frumvarpið standist stjórnarskrá? Við kölluðum ítrekað eftir því að ráðherrar mættu í umræðuna, ráðherra mannréttinda, ráðherra barna og ráðherra félagsmála, en þau mættu ekki. Við kölluðum eftir því að stjórnarliðar mættu, sem vilja svo ólmir samþykkja þetta frumvarp að það er sett efst á dagskrá allra þingfunda þessa árs. Þau mæta hins vegar ekki. Þau ætla sér að samþykkja þessa aðför að mannréttindum þegjandi og hljóðalaust.

Forseti. Þarf að segja eitthvað meira?