tímasetning þingfundar.
Forseti vill geta þess að á forsíðu vefs Alþingis var þess getið að þingfundur hæfist 10.30, þó að inn í skjalinu væri villa sem var síðan leiðrétt í morgun. Forseti vill jafnframt geta þess að í skilaboðum til þingflokksformanna í gær gat hann þess að stefnt væri að því að atkvæðagreiðslur hæfust um eða upp úr kl. 11 og einu athugasemdirnar sem bárust við þá tímasetningu voru frá þingflokki Samfylkingar sem óskaði eftir 20–30 mínútna hléi. Heyrðist ekki meira af því þannig að forseti telur nú að hálf klukkustund í þingflokksfundi og til þess að ljúka skjalavinnslu ætti að duga miðað við þessar aðstæður og miðað við það að skjöl í þessu máli hafa legið lengi fyrir.