153. löggjafarþing — 64. fundur,  9. feb. 2023.

tímasetning þingfundar.

[10:35]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Forseti ítrekar það sem sagt er að á forsíðu vefs Alþingis var getið um að þingfundur hæfist 10.30 og ekkert í skilaboðum frá forseta gaf annað til kynna. Sú villa sem hér hefur verið bent á inni í dagskrárskjalinu, sem var líka á heimasíðunni, var leiðrétt snemma í morgun og ég tel að allur sá aðdragandi sem hefur verið að þessu máli sé með þeim hætti að lokaundirbúningur nú á síðustu metrunum breyti kannski litlu þar um. En engu að síður stefnir forseti að því að gefa hálftímahlé að loknum óundirbúnum fyrirspurnum og áður en atkvæðagreiðsla hefst.