tímasetning þingfundar.
Forseti. Já, ég verð nú bara að taka undir með hv. þingmönnum Evu Sjöfn Helgadóttur og Birni Leví Gunnarssyni um að þegar búið er að gefa út dagskrá þá hljóti maður að miða við að hún standist. Það geta orðið mistök og ef þau mistök eru leiðrétt, kallar það þá ekki á að þau séu tilkynnt? Nú er Alþingi með ágætistilkynningarkerfi og getur sent út skilaboð, smáskilaboð, tölvupóst, og getur haft alls konar samskipti við þingmenn. Hefði ekki verið meiri sómi að því, þegar þessi mistök uppgötvuðust, sem þau sannarlega eru því að ekki var öllum þingmönnum ljóst að þingfundur myndi hefjast klukkan 10.30, að láta okkur vita? Hefði ekki þurft að tilkynna okkur þetta með einhverjum hætti þannig að við gætum mætt og verið undirbúin svo að sómi sé að í þessum þingsal?