tímasetning þingfundar.
Eins og forseti nefndi þá mun hafa verið um að ræða misvísandi skilaboð, annars vegar á forsíðu, heimasíðu Alþingis, þar sem rétta tímasetningin var, 10.30, sem raunar er sú tímasetning þar sem alltaf er byrjað á fimmtudögum og þingmenn mega fyrir fram vænta þess að þingfundir hefjist kl. 10.30. Forseti ítrekar það sem áður hefur komið fram að öll skjöl í þessu máli, breytingartillögur og annað, hafa legið lengi fyrir þannig að vandséð er að sá tími sem til stóð að gefa fyrir þingflokksfundi nú á eftir breytti öllu fyrir hv. þingmenn í því sambandi.