153. löggjafarþing — 64. fundur,  9. feb. 2023.

tímasetning þingfundar.

[10:38]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Af því að virðulegur forseti nefndi skilaboð til þingflokksformanna þá er ekkert minnst á tímasetningar í tilkynningum forseta til þingflokksformanna. Það er farið yfir dagskrána en þar eru engar tímasetningar. Og eins og hv. þm. Indriði Ingi Stefánsson nefndi þá er mjög eðlilegt, þegar svona mistök koma upp, að láta þá bara vita. Það hefði kannski verið aðeins meiri fyrirvari fyrir suma sem eru bara að opna dagskrána en ekkert endilega forsíðu Alþingis og reyna að finna dagskrána þar. Þetta er bara einföld og kurteisisleg beiðni um að vinna hlutina aðeins faglegar.