153. löggjafarþing — 64. fundur,  9. feb. 2023.

tímasetning þingfundar.

[10:40]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Sú ábending sem hv. þm. Björn Leví Gunnarsson kemur með hér er sennilega rétt vegna þess að hann er ekki fastur þingflokksformaður. Sá póstur sem hv. þm. Logi Einarsson vísaði til var sendur á lista yfir þingflokksformenn og hv. þm. Björn Leví Gunnarsson var ekki á þeim lista (BLG: Starfandi þingflokksformaður.) þannig að þeirri ábendingu er líka komið til skila og verður þess gætt að það verði ekki með þeim hætti meðan hv. þingmaður gegnir störfum þingflokksformanns.