153. löggjafarþing — 64. fundur,  9. feb. 2023.

staða efnahagsmála.

[10:42]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Fyrir viku síðan kom ég hingað upp og ég beindi spurningu til hæstv. fjármálaráðherra um stöðuna í efnahagsmálum og tilhneigingu margra stjórnarliða og reyndar fleiri til að kenna almenningi um stöðuna þá eins og áður. Þá eins og áður tók ráðherrann enga ábyrgð á þeirri stöðu sem nú er uppi og vísaði helst í ósjálfbærar launahækkanir. Reyndar hefur stór hluti vinnumarkaðarins axlað sína ábyrgð á stöðunni, gerði það við lok síðasta árs og stuðlaði þar með að auknum stöðugleika. Ríkisstjórnin hins vegar afneitar sinni ábyrgð á verðbólgunni og hærri vöxtum en með aðgerðum sínum í fjárlagafrumvarpinu var bálið tendrað. Það logar enn og það er í boði ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur. Er ráðherra enn sömu skoðunar, að ríkisstjórnin beri enga ábyrgð á því að nú í ellefta sinn í röð hækki Seðlabankinn stýrivextina? Er þessi afstaða ráðherra lóð hans á vogarskálarnar til að stilla til friðar á vinnumarkaði sem nú logar stafnanna á milli? Ekkert traust ríkir og það besta sem hæstv. fjármálaráðherra þessarar ríkisstjórnar getur nú boðið upp á er afneitun á hlut ríkisstjórnarinnar í eigin þenslu. Hættan við afneitun er aðgerðaleysi og við megum ekki við því núna. Eru einhverjar áætlanir hjá hæstv. ríkisstjórn um að reyna að vinna strax gegn verðbólgu, til að ganga í takti m.a. með seðlabankastjóra og stórum hluta vinnumarkaðar? Munum við til að mynda sjá strax aðhaldsaðgerðir hjá ríkisstjórninni og ríkisvaldinu og sparnað í ríkisrekstri?