staða efnahagsmála.
Virðulegur forseti. Hæstv. ráðherra talar um að við megum ekki leita að sökudólgum. En samt er það þannig að seðlabankastjóri, fyrir áramót, við afgreiðslu fjárlaga, og Samtök atvinnulífsins bentu eindregið á að þensla ríkisútgjalda væri allt of mikil og væri ekki hjálpleg í baráttunni við verðbólguna. Þetta eru mjög skýr skilaboð af hálfu Seðlabankans. En það var auðvitað eins og fyrri daginn, að fjármálaráðherra kemur hingað upp og þrumar út úr sér einhverjum hagstærðum og prósentum eins og það sé bara sérstakt listform. Og auðvitað skyldi engan undra, hann er búinn að sitja sem fjármálaráðherra í u.þ.b. áratug. En það er ekki spurningin til hans. Hún er mjög einföld: Telur hann sig og sína ríkisstjórn ekki bera neina ábyrgð á því að Seðlabankinn er skilinn eftir og hækkar vexti í 11. sinn í röð í þessu lágvaxtalandi sem Sjálfstæðisflokkurinn auglýsti mjög grimmilega fyrir síðustu kosningar og bauð kjósendum upp á? Ætlar hann ekkert að gera? Ætlar hann ekki að koma fram með tillögur um aðgerðir sem koma í veg fyrir 12. stýrivaxtahækkun Seðlabankans í röð?