153. löggjafarþing — 64. fundur,  9. feb. 2023.

staða efnahagsmála.

[10:47]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Ég hlýt að þurfa að benda á það hér að verðbólgan á Íslandi er ekki heimatilbúið fyrirbæri að öllu leyti. Verðbólga í Svíþjóð nú um mundir er t.d. 12%. Við erum að hluta til að eiga við fjölþætt, sem sagt fjölþætt áhrif. Eins og fram kom hjá Seðlabankanum í gær þá liggja rætur verðbólgunnar núna mjög víða. Hv. þingmaður segir að ég hafi sagt að við megum ekki leita að sökudólgum. Þetta er bara rangt. Það sem ég er að benda á er kjarni málsins, að það muni engu skila fyrir almenning að velta ábyrgðinni á milli hinna einstöku aðila sem geta haft áhrif á stöðuna í framhaldinu. Það mun bara engu skila. Ég fullyrði það eins og ég hef margoft gert hér áður. Það sem þarf að gera er að stilla saman aðgerðir á vinnumarkaði við það sem Seðlabankinn er að gera. Ég hef nú manna mest verið að tala um að það þurfi að standa með Seðlabankanum. En Seðlabankinn situr uppi með það núna að hafa væntanlega hækkað vexti of hægt, vanspáð verðbólgu of oft og hefur (Forseti hringir.) hlutverki að gegna til að stilla af verðbólguvæntingar inn í framtíðina (Forseti hringir.) sem eru algerlega farnar úr böndunum. En hverju mun það skila að fara ofan í saumana á þessu? Það mun litlu skila fyrir fólkið í landinu. Það sem þarf að gera er að stilla saman aðgerðir (Forseti hringir.) og á ríkisfjármálahliðinni munum við bæta afkomuna ár frá ári.

(Forseti (BÁ): Forseti minnir hv. þingmenn og hæstv. ráðherra á að ræðutími í síðari fyrirspurn og svari er aðeins ein mínúta.)