153. löggjafarþing — 64. fundur,  9. feb. 2023.

ríkisfjármál.

[10:49]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Herra forseti. Ég vona að hæstv. fjármálaráðherra sé með penna því ég þarf að spyrja hann nokkurra spurninga. Sú fyrsta lýtur að því sem var til umræðu hér áðan en bara í mjög einfaldri útgáfu. Ég spyr hæstv. fjármálaráðherra: Er hann ósammála seðlabankastjóra og hagfræðingum almennt um að mikil og hröð aukning ríkisútgjalda stuðli að verðbólgu? Er hæstv. fjármálaráðherra ósammála því?

Í öðru lagi spyr ég, út frá þeim málaferlum sem standa yfir vegna lána með breytilega vexti, hvort ráðuneyti hæstv. ráðherra hafi gert eitthvert mat á því hversu mikill kostnaðurinn gæti orðið fyrir bankana og þar með ríkið að hluta til og hvort hæstv. ráðherra telji eðlilegt að endurkröfur almennings fyrnist á meðan á málaferlum stendur. Þá vísa ég í gengislánin á sínum tíma, en þá var gerð breyting á lögum til að fyrirbyggja slíka fyrningu á meðan málið var í óvissu.

Í þriðja lagi spyr ég um Lindarhvol, hvort hæstv. fjármálaráðherra sé búinn að finna Lindarhvolsskýrsluna sem fram kom í fjölmiðlum nýverið að hann hefði fengið senda árið 2018 og hvort hæstv. ráðherra hafi rætt þessa skýrslu við forseta Alþingis og þá á hvaða nótum.