ríkisfjármál.
Virðulegi forseti. Varðandi aðhald í ríkisfjármálum þá hef ég margoft sagt að við þyrftum að bæta afkomuna ár frá ári. Það er afkomubatinn sem lýsir aðhaldi í ríkisfjármálum. Það er út af fyrir sig rétt að heildarafkoman frá því að fjárlagafrumvarpið var lagt fram þar til það var afgreitt versnaði. Það verður þó að taka það með í reikninginn sem gerðist á gjaldahliðinni. Ef við tökum t.d. breytta flokkun ríkiseigna, sem leiddi til þess að eignahliðin breyttist sem leiddi til gjaldfærslu upp á 7 milljarða, þá er það ekki þensluhvetjandi aðgerð, breytt flokkun ríkiseigna. Það er heldur ekki þensluhvetjandi að reikna 10 milljarða vaxtagjöld inn á árið 2023, eins og við gerðum milli umræðna. Afkoman versnaði um 10 milljarða við það vegna þess að þessir vextir eru ekki að fara til greiðslu úti í hagkerfinu og hafa ekki áhrif á sjóðstreymið árið 2023. Sama gildir um 5 milljarða tilfærslu frá ríki til sveitarfélaga sem gerði það að verkum að afkoma ríkisins versnaði um 5 milljarða en afkoma hins opinbera breyttist ekki neitt. Helmingurinn af því sem heildarafkoman versnaði um eru því liðir sem hafa engin áhrif úti í hagkerfinu. Það er hins vegar rétt að við jukum framlög til nokkurra málaflokka og ég gat ekki fundið annað en að það verði mjög breiður stuðningur við það hér á þinginu. Eftir sem áður hefði ég viljað sjá meiri afkomubata milli ára heldur en varð niðurstaðan.
Það er spurt um mat á áhrifum af þeim dómum sem eru að falla núna um þessar mundir. Að hluta til hefur slíkt mat farið fram og verið rætt milli fjármálaráðuneytisins og Seðlabankans en það þarf að vinna að því áfram. Og varðandi Lindarhvol, þar er spurt hvort ég hafi kynnt mér skýrsluna. Já, skýrsla ríkisendurskoðanda kom út árið 2020. Ég hef kynnt mér hana.