153. löggjafarþing — 64. fundur,  9. feb. 2023.

réttindi í almannatryggingakerfinu.

[10:55]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Það er eins gott að breyta um umræðuefni og róa fólkið niður. Svokölluð endurskoðun almannatrygginga stendur yfir og í vikunni vorum við að taka út eitt mál og afgreiða úr velferðarnefnd frá félags- og vinnumarkaðsráðherra, frumvarp til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar og lögum um félagslega aðstoð (réttindaávinnsla og breytt framsetning). Því miður gat Flokkur fólksins ekki verið með á þeirri afgreiðslu því ekki var verið að taka á nema brotabroti af því fjárhagslega ofbeldi og öðrum annmörkum sem þessi bútasaumaði óskapnaður sem lög um almannatryggingar eru, en inni í þeim er enn þá 10% skerðing hjá þeim sem eru með lægsta ellilífeyrinn í þessu kerfi og króna á móti krónu. Enn þá er líka ekki bara verið að setja fjármagnstekjuskatt á þá sem eru í örorku- og ellilífeyriskerfinu heldur líka 65% skerðingar ofan á það, sem er auðvitað ekkert annað en fjárhagsleg eignaupptaka.

Þetta er gert vegna þess að það fólk er hvað — veikt, fatlað, slasað. Um jólin greiddum við út 60.300 kr. til öryrkja en það voru 150–200 öryrkjar sem fengu ekki krónu af því. Hvers vegna ekki? Jú, vegna þess að þeir höfðu sumir verið hreppafluttir landshorna á milli og settir inn á hjúkrunarheimili. Við það missa þeir fjárhagslegt sjálfstæði, eru sviptir öllum fjármunum og dagpeningum hent í þá. En fá þeir að eiga dagpeningana? Nei. Ef þeir skyldu nú hafa einhverjar tekjur þá er 65% skerðing af þeim dagpeningum. Ég spyr: Hvers vegna í ósköpunum er ríkið að gera þetta? Er það til að spara 10–12 milljónir eða er það bara vegna þess að þeir geta gert þetta við verst setta fólkið okkar sem er inni á stofnunum og á ekki einu sinni að vera þar? Ég spyr hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra: Ætlar hann að sjá til þess að þetta fólk fái 60.300 kr. eins og allir aðrir öryrkjar hafa fengið?