réttindi í almannatryggingakerfinu.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir fyrirspurnina. Hv. þingmaður kemur hér inn á frumvarp þar sem nýverið var tekið út nefndarálit meiri hluta í hv. velferðarnefnd. Það frumvarp snýst fyrst og fremst um réttindaávinnslu í örorkulífeyriskerfinu. Ég vil að það komi skýrt fram hér, eins og kom fram í framsöguræðu minni, og eins og kemur fram í frumvarpinu, að þar erum við að bregðast bæði við athugasemdum sem hafa komið frá Ríkisendurskoðun, vegna álita umboðsmanns Alþingis og vegna alþjóðasamninga sem Ísland er aðili að. Þarna er verið að ná enn þá betur utan um og auka réttindi fólks inni í kerfinu, koma með frekari ívilnanir til fólks þegar kemur að réttindaávinnslu. Þetta eru mikilvæg atriði sem snúa m.a. að því að fólk sem hefur flutt af landinu og komið aftur til baka geti geymt sín réttindi. Þetta lýtur að því að fatlað fólk við 18 ára aldur er að fá meiri réttindi. Það frumvarp sem hér er um að ræða tekur ekki á öllum vanda kerfisins, enda kom það mjög skýrt fram, bæði í frumvarpinu og í framsöguræðu minni hérna á þingi, sem reyndar enginn hv. þingmaður tók þátt í umræðum um. Endurskoðunin á kerfinu í heild sinni er í fullum gangi og ég er sannfærður um það — og ég veit að þankagangur okkar hv. þingmanns fer að mörgu leyti saman þar, að stefna að því og láta það takast — að þær breytingar muni skila mun meiri árangri fyrir þennan mikilvæga hóp samfélagsins.