réttindi í almannatryggingakerfinu.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra fyrir svörin sem voru engin. Hann svaraði ekki spurningunni um 60.300 krónurnar, hvort hann ætlaði að sjá til þess að þetta fólk fengi þær. Það sem er merkilegt við þetta allt saman er að þetta er yfirleitt fólk sem er nauðungarvistað inni á hjúkrunarheimilum, fólk undir 60 ára aldri sem á ekki þar heima. Í hvaða flokk er þetta fólk sett? Ef við lesum lögin þá er það sett í sama flokk og afbrotamenn. Fólk sem lendir í fangelsi er í nákvæmlega sama flokki, svipt sjálfræði og öllum til undrunar fær það vasapeninga og öllum til undrunar fær það ekki að halda vasapeningunum ef það á einhverjar krónur annars staðar. 65 aurar á móti krónu eru teknir annars staðar frá.
Ég spyr: Hver bjó til þetta kerfi? Hvernig er hægt að viðhalda svona kerfi? Þetta var hægt í gamla daga en á hvaða öld erum við? Hvernig getum við komið svona fram við veikt og slasað fólk og sagt við það: Af því að þú ert veikur eða slasaður eða fatlaður (Forseti hringir.) þá má svipta þig fjárræði, henda í þig vasapeningum og þú færð ekki 60.300 kr. eins og aðrir af því að þú varst (Forseti hringir.) fluttur hreppaflutningum á milli staða á hjúkrunarheimili?