meiri hlutinn á þingi.
Forseti. Blessunarlega búum við við lýðræði á Íslandi, reyndar með pínu skekkt kosningakerfi sem er vilhallt stærri flokkunum sem fá aukaþingmenn, svona bara af því að það hentar þeim. Undanfarið erum við búin að vera með þetta æðislega kvótakerfi sem hyglir mjög fáum, ekki öllum, fjármagnar ekki eftirlit með auðlindinni. Við erum með heilbrigðiskerfið í rúst, eins og ég nefndi hérna áðan, en alltaf þegar minni hlutinn segir: Bíddu, væri ekki sniðugt að gera þetta öðruvísi? þá hlustar meiri hlutinn ekki, enda er staðan eins og hún er. Lýðræðið skilar svo sem sínu í kosningum á fjögurra ára fresti en lýðræðið er meira en kosningar á fjögurra ára fresti. Lýðræðið er líka að hlusta á hverjum degi. Alltaf. Hérna viðurkenndi fjármálaráðherra áðan að þau ættu eftir að efna gefin loforð í almannatryggingum upp á tugi milljarða. (Gripið fram í.) Það er bara ágætt að muna það að fólk þarf að bíða aðeins lengur eftir réttlætinu.