útlendingar.
Herra forseti. Þegar fólk leitar hingað eftir vernd vegna þess að lífi þess og öryggi er ógnað í heimalandi þess þá berum við bæði lagalega og siðferðilega skyldu til að bregðast við. Þeir flokkar sem hér munu greiða þessu máli atkvæði sitt verja ákvörðunina með því að svo breytt útlendingalög muni létta álagi á innviði Íslands. Það er rangt. Þess í stað er fyrirsjáanlegt að álag á félagslegt kerfi sveitarfélaga og álag á lögreglu mun aukast. Nær 80% umsækjenda um alþjóðlega vernd koma hingað frá Úkraínu og Venesúela og fá sjálfkrafa og með réttu dvalarleyfi. Frumvarpið snertir lítið á stöðu þeirra. Það mun hins vegar hafa vond áhrif á hinn hópinn, minni hluta umsækjenda, opnar fyrir að heimilislausum muni fjölga og að ýmis önnur neyð, jafnvel til þessa lítt þekkt í samfélagi okkar, muni blasa við þeim. Þetta, herra forseti, er vond framtíðarsýn. Þetta er ekki leiðin að góðu, mannúðlegu og skilvirku kerfi í allra þágu. Þingflokkur Viðreisnar leggst alfarið gegn því að frumvarpið verði samþykkt.