útlendingar.
Herra forseti. Það er verulegt undrunarefni, verulegt, að ríkisstjórnarflokkarnir ætli að keyra þetta mál í gegn eins og það er uppsett í þessu frumvarpi. Fyrir allsherjar- og menntamálanefnd hafa komið fjölmargir umsagnaraðilar. Fjölmargir hafa sent inn umsagnir um frumvarpið og lýst því þar að það brjóti oft og tíðum á grundvallarmannréttindum fólks sem fyrir er í mjög viðkvæmri og erfiðri stöðu. Það kom enginn nema dómsmálaráðuneytið fyrir nefndina og jánkaði því að þetta mál væri einhver sérstök bragarbót. Þetta er svartur dagur fyrir mannréttindi í þessu landi. Það er með ólíkindum að Framsóknarflokkurinn styðji þetta og með verulegum ólíkindum að sá flokkur sem hingað til hefur þó talað gegn dómsmálaráðherra í einstaka atriðum, VG, skuli hafa látið lemja sig til hlýðni í þessu máli.