153. löggjafarþing — 64. fundur,  9. feb. 2023.

útlendingar.

382. mál
[12:13]
Horfa

Rósa Björk Brynjólfsdóttir (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Ég greiði atkvæði gegn þessu handónýta frumvarpi sem felur í sér alvarlegar skerðingar á réttindum eins viðkvæmasta hóps samfélagsins, fólks á flótta, frumvarpi sem mun marka kaflaskil í meðferð íslenskra stjórnvalda á fólki sem sótt hefur um vernd, frumvarpi sem ætlað er að stuðla að heimilisleysi, sárafátækt og hindra og hamla aðgengi fólks í viðkvæmustu stöðu í okkar samfélagi að grundvallarmannréttindum á borð við húsaskjól og heilbrigðisþjónustu. Verði frumvarpið að lögum mun það ekki leiða til aukinnar skilvirkni eða sparnaðar í kerfinu heldur koma afar viðkvæmum hópi fólks í enn verri stöðu. Aldrei hafa verið fleiri á flótta í heiminum og það eru nöturleg skilaboð sem þingmenn Vinstri grænna, Framsóknar og Sjálfstæðisflokks senda inn í þá stöðu og staðreynd með þessu frumvarpi. Ég mun leggjast alfarið gegn þessu frumvarpi ásamt þingmönnum Samfylkingarinnar.