153. löggjafarþing — 64. fundur, 9. feb. 2023.
útlendingar.
382. mál
Forseti. Það að verið sé að svipta umsækjendur um alþjóðlega vernd, þjónustu, er mjög skrýtið og það mun ekki minnka kostnað ríkissjóðs. Afleiðingarnar eru ófyrirséðar en við vitum að fólk í neyð kallar á aukna þjónustu. Nú verða þessir einstaklingar, ef frumvarpið verður samþykkt, útlendingar en ekki umsækjendur um alþjóðlega vernd og fá því ekki réttindin og þjónustuna sem þau hafa fengið áður. Ég segi því nei.