153. löggjafarþing — 64. fundur,  9. feb. 2023.

útlendingar.

382. mál
[13:10]
Horfa

Eva Sjöfn Helgadóttir (P):

Forseti. Hér er verið að ræða um að afla mjög viðkvæmra heilsufarsgagna um fólk í óþökk þess. Það er ekki í lagi og við ættum ekki að leyfa að það sé gert og það er svo sem ekki bara mín skoðun. Eins og hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir nefnir þá hefur Læknafélagið einmitt sagt sína skoðun á þessu. Það á að þurfa dómsúrskurð og samþykki því annars getur þetta verið mögulegt mannréttindabrot. Ég segi nei því að hér virðist vera um mögulegt mannréttindabrot að ræða.