153. löggjafarþing — 64. fundur,  9. feb. 2023.

útlendingar.

382. mál
[13:54]
Horfa

Indriði Ingi Stefánsson (P):

Virðulegi forseti. Ég er ekki lögfræðingur og hafði eiginlega aldrei áður en ég fór að kynna mér þetta mál heyrt um stjórnsýslulög en eftir að hafa lesið ótalmargar umsagnir um þetta þá er mjög mikið vísað í stjórnsýslulög við umfjöllun um þessi ákvæði og mér er orðið alveg ljóst að stjórnsýslulögin eru bara grundvallarréttindi okkar. Ef við ætlum í alvörunni að gefa eitthvað eftir af þeim, hvar endar það? Mun það einhvern tímann stoppa? Ég get ekki gefið afslátt af borgararéttindum, af grundvallarréttindum í þjóðfélaginu. Ég sætti mig bara ekki við það. Þess vegna segi ég nei.