útlendingar.
Herra forseti. Í þessari málsgrein kristallast tilgangurinn með þessu ákvæði. Þessi málsgrein segir að 24. gr. stjórnsýslulaga gildi ekki um fólk á flótta. Í 24. gr. stjórnsýslulaga er heimild til endurupptöku máls sem er mjög þröng; ef fólk hefur gögn sem munu umbylta málinu, gögn sem breyta málinu, ný gögn, og ákvörðunin var tekin á röngum forsendum eða aðstæður eru breyttar og forsendur eru breyttar. Þetta er bara grundvallarregla í stjórnsýslurétti sem er talin eiga við um alla borgara í samskiptum þeirra við ríkið, að við getum fengið málið okkar endurskoðað ef það er byggt á röngum forsendum. Ég bið ykkur um að lesa þessa málsgrein aftur. 24. gr. stjórnsýslulaga á ekki að gilda um fólk á flótta. Ég segi nei.