útlendingar.
Virðulegur forseti. Hér er verið að útskýra frekar ákvæði sem er í gildandi lögum um fyrsta griðland. Það er ekki eins og það sé nýtt. Og það er ekki þannig að þetta ákvæði setji okkur í þá stöðu að við sendum fólk bara eitthvað. Það er alls ekki svo. Það er einmitt verið að skýra þetta frekar í ákvæðinu.
Virðulegur forseti. Það segir í ákvæðinu að hafi umsækjandi slík tengsl við annað ríki að eðlilegt og sanngjarnt sé að hann dvelji þar, ferðist eða sé fluttur þangað, enda þurfi hann ekki að sæta ofsóknum þar, geti hann óskað eftir að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og fengið vernd í samræmi við alþjóðasamninga um stöðu flóttamanna.
Fólk er ekki sent til landa þar sem lífi þess er ógnað, það er ekki sent til landa sem uppfylla ekki þær kröfur sem mælt er fyrir í flóttamannasamningi Sameinuðu þjóðanna.