sóttvarnalög.
Virðulegi forseti. Um áhrif Covid-faraldursins þarf vart að fjölyrða, hann hefur ekki farið fram hjá neinum. Árangurinn af þeim aðgerðum hefur stundum verið upp og ofan en þegar aðgerðirnar hafa verið fumlausar hefur gengið vel. Það sem er kannski gott við þessi lög er að þau styrkja stoðirnar og auka við möguleika á að taka fumlaust á málum. En það eru líka ákveðnir annmarkar og sérstaklega þegar maður horfir á þetta út frá persónuvernd, þá eru þarna, að mér virðist, ansi margar hættur hvað hana varðar, hvort hún verði nógu vel tryggð. Það er eitthvað sem ég er því miður ekki alveg sannfærður um og myndi hvetja til að yrði skoðað. Hvað varðar aðrar afleiðingar faraldursins, sem mér sýnist þetta frumvarp að mörgu leyti ekki taka til, þá má nefna þau tilmæli sem voru gefin út að taka sérstaklega ungmenni út úr félagslífi, út úr umgengni við kunningja og vini og mögulega út úr námi því að allt þetta gerði mörgum erfitt fyrir að sinna námi sínu nægjanlega vel. Það er alveg rétt að reyna að horfa til þess að það þurfi líka að taka tillit til annarra þátta. Ég varð þess áskynja við að lesa þetta frumvarp að þarna sé meira verið að horfa á framkvæmdina eins og hún fór fram hér en ég myndi hvetja til þess að við frekari vinnslu skoðum við hvort við getum ekki komið til móts við aðra þætti eins og að sinna þeim hópi sem gæti staðið höllum fæti eftir langvarandi aðskilnað frá vinum og kunningjum, jafnvel fjölskyldu, og horfum til þess sem af því getur hlotist. Það þarf mögulega að fylgja því eftir með því að veita sálfræðiaðstoð. Svo er bara rétt að hvetja til þess að það verði alveg sérstaklega tryggt í allri vinnslu að aðgerðir brjóti ekki ákvæði stjórnarskrár. Þá má líka horfa til þess hversu illa þetta fór með mörg smærri fyrirtæki, sérstaklega þar sem fagfólk starfar í nánum samskiptum við kúnna, t.d. þurftu hárgreiðslumeistarar oft að bregðast mjög hratt við og voru oft komnir í mjög knappa stöðu. Ég vona að fleiri þættir verði hafðir til hliðsjónar þannig að við getum dregið lærdóm af því sem fór úrskeiðis í því sem var gert.
Ég ætla að ljúka þessu með því að hvetja til þess að menn horfi á þetta heildrænt, skoði og taki til greina fleiri þætti en einungis þá sem unnt var að tiltaka núna. Þegar hlutirnir gerast hratt þarf eðlilega að taka ákvarðanir á mjög skömmum tíma og ekki er hægt að ætlast til þess að þau viðbrögð séu fullkomin. Það er auðvelt að horfa á það sem var gert í fortíðinni og gagnrýna það og segja að það hefði átt að gera hlutina öðruvísi. Það er ekki það sem ég er að tala um, heldur að ef við erum að fara að setja þetta niður sem einhverja heildræna sýn þá þurfi að taka sem allra flesta þætti inn í þá vinnu þannig að við séum ekki bara með afmarkað mengi og skoðum þetta bara út frá einum þætti. Þar þarf að taka fleira til, forseti.