153. löggjafarþing — 64. fundur,  9. feb. 2023.

tónlistarstefna fyrir árin 2023--2030.

689. mál
[17:32]
Horfa

menningar- og viðskiptaráðherra (Lilja Alfreðsdóttir) (F):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir tillögu til þingsályktunar um tónlistarstefnu fyrir árin 2023–2030. Um er að ræða fyrstu opinberu stefnuna í málefnum tónlistar á landinu. Stefnan byggir á tillögum starfshóps frá árinu 2021 sem skipaður var helstu hagaðilum tónlistar á Íslandi. Á þeim grunni var unnið að frekari mótun stefnunnar með virku samtali við hag- og fagaðila. Við mótun stefnunnar var einnig höfð hliðsjón af öðrum stefnum á borð við kvikmyndastefnu, menningarstefnu og ekki síður menningarsókn. Mikilvægt er að almenn sátt sé um þá stefnu sem mörkuð er í málefnum tónlistar og að stjórnvöld hafi sem besta innsýn í ólík sjónarmið.

Drög að stefnunni voru birt í samráðsgátt stjórnvalda í ágúst 2022 og barst töluvert af umsögnum. Meginþorri umsagna um málið tengdust tónlistarmenntun og voru þær mjög dýrmætt innlegg í vinnu við frekari úrvinnslu stefnudraganna. Tónlistarmenntun er ein af grunnstoðum tónlistarlífs og því var grundvallaratriði að við mótun framtíðarstefnu fyrir málefni tónlistar yrði tónlistarmenntun tekin fyrir.

Við nýja skipan ráðuneyta sem tók gildi í ársbyrjun 2022 færðust málefni tónlistarmenntunar yfir í mennta- og barnamálaráðuneytið annars vegar og háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti hins vegar. Það ber að þakka fyrir afar gott samstarf á milli ráðuneytanna í vinnsluferlinu og fagna því hve metnaðarfullar margar af aðgerðunum eru. Meðal annars má nefna að ein aðgerðanna er sú að sett verði af stað endurskoðun á aðalnámskrá tónlistarskóla.

Aðgerðaáætlun stefnunnar verður í tveimur hlutum. Fyrri hluti aðgerða hefur nú þegar verið mótaður fyrir árin 2023–2026. Á komandi árum verði mótuð aðgerðaáætlun fyrir árin 2027–2030.

Með tónlistarstefnu er mótuð framtíðarsýn og vegvísar með það að markmiði að styðja við tónlist sem listgrein en ekki síður að styðja við tónlistarfólk og önnur þau sem starfa við tónlist. Tryggja skal inngildingu og aðgengi almennings að tónlist og tónlistarmenntun. Þingsályktunartillaga um tónlistarstefnu inniheldur þrjár megináherslur sem hver um sig hefur að geyma tiltekin markmið og aðgerðir til að ná markmiðunum.

Fyrsta megináherslan snýr að tónlistarmenningu og -menntun og inniheldur þrjú markmið. Fyrsta markmiðið snýr að aðstöðu. Húsnæði til tónlistariðkunar er nauðsynlegt og þarf að svara fjölbreyttum þörfum. Ýmis tækifæri geta leynst til betri nýtingar á húsnæði í eigu ríkis eða sveitarfélaga um land allt. Við opnun Hörpu árið 2011 eignuðust landsmenn tónleikahús á heimsmælikvarða. Mikilvægt er að halda á lofti mikilvægi Hörpu sem tónlistarhúss og tryggja að kostnaður sé ekki hindrun fyrir því að haldnir séu fjölbreyttir tónlistarviðburðir í húsinu. Annað markmiðið snýr að tónlistararfleifð og varðveislu menningarverðmæta á sviði tónlistar. Tónlistarverðmæti má finna á fjölmörgum stöðum. Mikilvægt er að fá yfirsýn yfir hvar þessi verðmæti er að finna og móta leiðir til að varðveita þau og gera aðgengileg almenningi. Þriðja markmiðið snýr að tónlistarmenntun. Tónlistarmenntun er undirstaða sterkrar tónlistarmenningar og á stóran þátt í grósku og velgengni íslenskrar tónlistar. Í tónlistarnámi er lögð rík áhersla á skapandi hugsun, sjálfstæði, öguð vinnubrögð og samvinnu sem nýtist nemendum á hvaða sviði sem er og er góður undirbúningur fyrir framtíðina. Í stefnunni er gengið út frá því að á Íslandi skuli vera aðgengi að fjölbreyttri tónlistarmenntun og að börn og unglingar eigi að geta haft aðgang að tónlistarnámi óháð bakgrunni og búsetu. Mikill skortur er á tónlistarkennurum á öllum skólastigum og er meðalaldur stéttarinnar með því hæsta sem gerist í kennarastétt. Kerfið er ekki sjálfbært og þörf er á markvissu átaki í nýliðun. Huga þarf að því að efla menningarlæsi og leggja áherslu á nýja menningarneytendur sem eru tónlistarunnendur framtíðarinnar. Börn eiga að hafa aðgengi að fjölbreyttum tónlistartegundum í ólíkum birtingarmyndum og þau þurfa að sjá að tónlist er tungumál sem á sér engin mörk.

Önnur megináhersla stefnunnar snýr að tónlist sem atvinnugrein og skiptist hún í fjögur markmið. Fyrsta markmiðið er að hér á landi verði sterkur og framsækinn tónlistariðnaðar. Tónlistarframleiðsla og útgáfa á landinu hefur blómstrað frá aldamótum og trúlega státa fá lönd af jafn mörgum útgefnum titlum á ári miðað við höfðatölu. Á sama tíma og gróska í tónlist hefur aukist gríðarlega hefur uppbygging tónlistargeirans sem atvinnugreinar gengið hægar. Til að vinna gegn þessari þróun þarf að styðja uppbyggingu innviða og þekkingar með því að hlúa að tónlistartengdum sprotafyrirtækjum og grasrót í tónlist og efla nýsköpun. Annað markmiðið snýr að því að tónlist verði fullgild og eftirsóknarverð atvinnugrein. Markmiðið felur í sér að nýjar kynslóðir tónlistarfólks hafi atvinnuöryggi og sjái möguleika og tækifæri til að vinna að list sinni. Sagan hefur sýnt að íslensk tónlist hefur alla burði til að vera öflug útflutningsgrein. Hvati þarf að vera til staðar fyrir stofnun tónlistartengdra fyrirtækja og fyrir því að utanumhald tónlistarverkefna haldist í íslensku hagkerfi. Töluvert má læra af uppbyggingu greina á borð við kvikmyndagerð og tölvuleikjaframleiðslu hér á landi og liggja þar mikil tækifæri til samstarfs og þekkingaryfirfærslu. Tónlistariðnaðurinn á að vera aðgengilegur tónlistarfólki og öðru fagfólki af ólíkum bakgrunni og áhersla skal lögð á fjölbreytileika og inngildingu. Leitast skal við að virkja og hvetja nýja Íslendinga til sköpunar og þátttöku í tónlistargeiranum. Þriðja markmiðið er að ná betri yfirsýn yfir umfang íslenska tónlistargeirans en þar á töluverð sköpun og framleiðsla sér stað. Á sama tíma eru stærð hans og umfang sem og útflutningsverðmæti tónlistar að mörgu leyti á huldu þar sem skortur hefur verið á greinargóðri tölfræði. Mikilvægt er að yfirsýn sé yfir þær greiningar sem liggja fyrir ásamt því að fylgjast með straumum og stefnum í alþjóðlegum greiningum. Mikil tækifæri liggja í því að ný tónlistarmiðstöð sinni þessu hlutverki og byggi upp yfirgripsmikla þekkingu á tónlistariðnaði sem nýtist í stuðningi við uppbyggingu á honum hér á landi. Fjórða markmiðið snýr að skilvirku sjóðakerfi fyrir tónlist. Sjóðakerfi tónlistar á að styðja við nýsköpun og framgang tónlistargeirans og auka aðgengi almennings að fjölbreyttri tónlist á ólíku formi. Fylgja þarf eftir þeirri endurskoðun sem farið hefur fram á sjóðakerfi tónlistar með stofnun nýs tónlistarsjóðs. Markmið og árangursmælikvarðar sjóðsins eiga að vera skýrir og eftirfylgni á framgangi verkefna sem hlotið hafa styrki úr sjóðnum á að vera tryggð.

Virðulegur forseti. Þriðja megináherslan fjallar um útflutning á tónlist og hefur hún tvö markmið. Fyrra markmiðið er að auka útflutningstekjur af tónlist. Ísland er vel staðsett á milli Norður-Ameríku og Evrópu og er vinsæll viðkomustaður á ferðalögum fólks á milli heimsálfa. Þessi staðsetning landsins ætti jafnframt að koma skapandi greinum til góða og gefa tækifæri á að landið marki sig sem alþjóðlega miðstöð tónlistar og skapandi greina í Norður-Atlantshafi. Á Íslandi er rík tónlistarmenning. Gera þarf tónlistarviðburði, tónlistararfinn og tónlistarsenuna alla sýnilegri við komuna til landsins í borg og á landsbyggð, bæði gagnvart heimafólki og ferðamönnum. Mikil tækifæri eru falin í uppbyggingu á menningarferðamennsku í tengslum við tónlist. Síðara markmiðið snýst um að tónlistargeirinn sé sjálfbær og umhverfisvænn. Sjálfbærni og græn skref skal hafa í huga í öllum verkefnum, ekki síst útflutningstengdum verkefnum. Íslenskur tónlistariðnaður á að vera framarlega og leiðandi í sjálfbærni og umhverfisvitund. Leiðarstefið á alltaf að vera: Stækkum menningarfótsporið en minnkum kolefnisfótsporið.

Virðulegur forseti. Það er ekki að ástæðulausu að ákveðið var að tími væri kominn til að setja skýra tónlistarstefnu. Tónlistarsenan hefur svo sannarlega blómstrað frá aldamótum og var upptakturinn að því hafinn rúmum áratug þar á undan. Íslenskt tónlistarfólk sem starfar í alls kyns tónlistarstefnum og tegundum tónlistar hefur náð gríðarlegum árangri á erlendri grundu og unnið til fjölda alþjóðlegra verðlauna fyrir störf sín. Með tónlistarstefnu viljum við setja skýra sýn og stefnu í málefnum tónlistar og styðja þannig enn frekar við bakið á tónlistarfólkinu okkar, tónlistarkennurum og öllu því fagfólki sem starfar á sviði tónlistar. Von mín er sú að sá fjöldi fari vaxandi á komandi árum og að íslensk tónlist blómstri sem aldrei fyrr. Með þeirri stefnu sem ég legg hér fram er traustur grunnur lagður að þeirri sýn.

Að lokinni þessari umræðu, virðulegi forseti, legg ég til að málið gangi til síðari umræðu og til umfjöllunar hv. allsherjar- og menntamálanefndar.