153. löggjafarþing — 64. fundur,  9. feb. 2023.

myndlistarstefna til 2030.

690. mál
[17:44]
Horfa

menningar- og viðskiptaráðherra (Lilja Alfreðsdóttir) (F):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir tillögu til þingsályktunar um myndlistarstefnu til ársins 2030. Tillagan felur í sér stefnu og aðgerðaáætlun í myndlist sem miðar að því að efla myndlistarmenningu landsins. Í október 2020 var verkefnahópi með fulltrúum myndlistarumhverfisins og þáverandi mennta- og menningarmálaráðuneytis falið að móta heildstæða stefnu um málefni myndlistar á Íslandi til ársins 2030. Markmið hópsins var að greina starfsemi hins opinbera á sviði myndlistar, allt frá löggjöf til stofnana og stuðningskerfis sem og tölulegar upplýsingar um myndlist, að móta fyrstu drög að markmiðum og aðgerðum í samráði við ráðherra og fulltrúa helstu stofnana, hagaðila og atvinnulífs á sviði myndlistar og leggja grunn að stefnu og aðgerðaáætlun.

Myndlistarlíf á Íslandi er í miklum blóma og fram undan er tilefni til að beina sjónum að frekari tækifærum til vaxtar. Sköpun íslenskra listamanna fangar athygli fólks hér á landi sem og erlendis. Árangurinn birtist í fleiri tækifærum íslenskra listamanna til þátttöku í kraftmikilli safnastarfsemi og vönduðum sýningum um allt land. Einnig endurspeglast árangurinn í þátttöku á virtum alþjóðlegum viðburðum og sýningum. Eftirspurn eftir kaupum á íslenskum listaverkum er umtalsverð. Ísland er orðið fjölmenningarsamfélag og brýnt að fjölbreytt samsetning íbúa landsins endurspeglist í myndlistarlífinu hér á landi. Ungt fólk sækir í auknum mæli í listgreinar, eins og myndlistina, sem eru í eðli sínu greinar framtíðar, alþjóðlegar og sjálfbærar í senn. Fyrir utan að gegna ríku og vaxandi hlutverki í samfélaginu er myndlist sífellt mikilvægari þáttur í alþjóðlegri markaðssetningu Íslands sem lands lista og skapandi greina og á ríkan þátt í einstakri upplifun erlendra ferðamanna sem koma til landsins. Af þessu má álykta að með aukinni fjárfestingu muni greinin geta skilað þjóðarbúinu talsvert meiri verðmætum en hún gerir nú. Það er því mikilvægt að skapa íslenskri myndlist bestu mögulegu aðstæður til að vaxa og dafna. Erfitt getur reynst að henda reiður á umfangi myndlistar. Með stefnu og aðgerðaáætlun er markmiðið að fá yfirsýn yfir sýnilega og ósýnilega þræði myndlistarinnar, allt frá frumsköpun til hagræns umfangs. Því fylgir stefnunni ekki tæmandi listi yfir þá aðila sem koma að málefnum myndlistar og hugtökin myndlistarumhverfi og atvinnulíf á sviði myndlistar eru heldur ekki skilgreind frekar til að halda því sem opnustu hverjir geta fallið undir stefnuna.

Virðulegur forseti. Með framtíðarsýn myndlistarstefnunnar er stefnt að því að á Íslandi ríki kraftmikil og lifandi myndlistarmenning og myndlistarstarfsemi. Þar er áhersla lögð á að myndlist leiki stórt hlutverk í samfélaginu og verði órjúfanlegur hluti af menntun, þroska og daglegu lífi fólks um allt land óháð aðstæðum. Myndlistarfólk verði metið að verðleikum og áhersla lögð á kennslu og nám í myndlist og listasögu á ólíkum skólastigum. Myndlist eigi vaxandi samfélagslegu hlutverki að gegna og stuðli að gagnrýnni og skapandi hugsun og umræðu. Framtíðarsýnin stefnir einnig að því að starfsemi listasafnanna þjóni þörfum síbreytilegs samfélags. Stofnana- og stuðningskerfi myndlistar verði einfalt og skilvirkt. Að lokum er stefnt að því að vöxtur atvinnulífs á sviði myndlistar endurspeglist í fjölda myndlistarsýninga, fjölda gallería og annarra fyrirtækja með starfsemi á sviðinu. Íslensk myndlist veki athygli og marki sér stöðu innan alþjóðlega listheimsins. Myndlist á Íslandi hafi aðdráttarafl fyrir þátttakendur í alþjóðlegu myndlistarlífi og myndlistin stuðli þannig að aukinni þekkingu og áhuga almennings á myndlist og bæti lífsgæði og hamingju.

Verði tillagan sem ég mæli hér fyrir óbreytt að þingsályktun er gert ráð fyrir að lagt verði af stað í þá vegferð að koma aðgerðum í framkvæmd. Gríðarlegur meðbyr og áhugi er á þeirri vinnu sem fór fram við gerð myndlistarstefnunnar og mörg verkefni þegar farin af stað í átt að bættu myndlistarumhverfi, til að mynda hefur myndlistarmiðstöð nú þegar tekið til starfa með breyttum áherslum.

Virðulegur forseti. Að lokinni þessari umræðu legg ég til að tillögunni verði vísað til hv. allsherjar- og menntamálanefndar til umfjöllunar.