lögreglulög.
Virðulegi forseti. Ég er nú þeirrar skoðunar að það sé ekki kannski mikið vit í því að ég sé að spá í spilin svona fram í tímann með það hvernig málið mögulega gæti litið út eftir þinglega meðferð. Ég hef sjálf bara mjög mikla trú á þinginu og ég held að þeir fyrirvarar sem við erum að tala fyrir hér séu til þess fallnir að opna samtalið mjög vel, þ.e. að öll þau sjónarmið og ekki síst þau sjónarmið sem þingflokkur hv. þingmanns hefur staðið fyrir eigi að rata inn í umfjöllun málsins í nefnd. Mér finnst það mikilvægt og eins og ég rakti hér áðan bæði í andsvari og ræðu þá finnst mér, þegar við erum að fjalla um heimildir lögreglu, að við eigum alltaf að iðka mjög víðtækt lýðræðislegt samtal frekar en að leggja upp með einhverja tiltekna tillögu sem sé þannig um búið að hún hljóti bara afgreiðslu enda er þingræðið til þess hugsað að við fjöllum um mál og gerum það vel. Ástæðan fyrir því að ég tek til máls undir þessum lið er fyrst og fremst sá vilji minn sem ég vil lýsa hér og ég tel að allsherjar- og menntamálanefnd muni gera þetta af trúmennsku og að málið fái góða yfirferð þar.