153. löggjafarþing — 64. fundur,  9. feb. 2023.

lögreglulög.

535. mál
[18:39]
Horfa

Lenya Rún Taha Karim (P):

Virðulegi forseti. Ég ætla alls ekki að hafa þetta langt. Ég ætla bara að lýsa yfir nokkrum sjónarmiðum þar sem ég veit ekki hvort ég geti komið þeim á framfæri við 2. umr., enda er ég ekki alltaf hér inni. Ég ætla bara að byrja á því að segja að lögreglan er eina stofnunin á Íslandi sem er með lagaheimild til þess að beita borgara ofbeldi og það ber alltaf að gæta hófs við beitingu þessarar heimildar. Það er auðvitað mjög nauðsynlegt að sporna gegn skipulagðri glæpastarfsemi, ég er algjörlega þar. Þessi nálgun sem við erum að taka núna með því að auka eftirlitsheimildir og með því að fela lögreglunni rafvarnarvopn — sem eru ekki rafvarnarvopn, þetta eru bara rafvopn, guð minn góður — held ég að sé ekki til þess fallin að koma í veg fyrir frekari skipulagða glæpastarfsemi heldur er þetta að fara að ýta undir vopnakapphlaup. Ég hef svo sem farið út í þá sálma en það sem mig langar að brýna fyrir okkur núna varðar eftirlitið sem lögreglan sætir á Íslandi eða réttara sagt eftirlitið sem lögreglan sætir ekki. Það er ekkert sjálfstætt eftirlit með störfum lögreglu hér á landi. Nefnd um eftirlit lögreglu hefur hvorki sjálfstætt rannsóknarvald né saksóknarvald eins og annars staðar á Norðurlöndum, til að mynda í Danmörku. Í Danmörku er sérstakt sjálfstætt embætti sem hefur eftirlit með lögreglunni.

Í lagafrumvarpinu, minnir mig, það er svolítið langt síðan ég las það, er vísað til þess að við séum að samræma regluverk okkar hvað varðar starfsemi lögreglu við önnur Norðurlönd. Allt í góðu en t.d. á hinum Norðurlöndunum fer leynigæslan þar ekki með rannsókn á skipulagðri glæpastarfsemi eins og er ætlast til að leynilögreglan eða sérsveitin hér eigi að gera. Þá segir dómsmálaráðuneytið í greinargerð með frumvarpinu að leyniþjónustan á Norðurlöndunum hafi miklu víðtækari heimildir heldur en til stendur að veita ríkislögreglustjóra hér með þessu frumvarpi. En mér finnst það í besta falli hálfsannleikur. Eins og hefur fram komið í máli hv. þm. Orra Páls Jóhannssonar og hæstv. matvælaráðherra Svandísar Svavarsdóttur þá er þetta mál vissulega enn þá í 1. umr., það á eftir að sæta þinglegri meðferð. En þegar mál varðar beina hagsmuni og réttindi borgara sem við hér á þingi eigum að gæta þá ber að flagga þessu bara um leið í 1. umr. Þess vegna langaði mig að koma þessu á framfæri hér. Síðan eru notuð þessi rök sem ég var að telja upp varðandi Norðurlöndin til að réttlæta það að við þurfum ekki sjálfstætt eftirlit með lögreglunni. Mér þykir það vera algerlega rangt. Þegar við gefum lögreglunni auknar heimildir þarf að vera aukið eftirlit með lögreglunni. Þannig á þetta bara að vera, þetta er smá eins og vegasalt. Það gengur ekki að lögreglan sé, án eftirlits, með alls konar heimildir, jafnvel þó að þeim verði ekki endilega alltaf beitt, jafnvel þó að þeim verði beitt í hófi. Þetta er rosalega vandmeðfarið. Við verðum að gæta hófs og þess vegna tel ég að það yrði ágætt jafnvægi að í fyrsta lagi falla frá þessu lagaákvæði sem veitir lögreglunni frekar víðtækar heimildir og að auka sjálfstætt eftirlit með lögreglunni. Við höfum heyrt þessa sömu sögu með búkmyndavélar lögreglu, að þau geti bara neitað að afhenda eftirlitsnefndinni myndböndin frá handtökum þeirra, það er gjörsamlega galið. Það er ógeðslega skrýtið að við búum í samfélagi þar sem lögreglan er eina stofnunin sem má beita fólk ofbeldi en samt má lögreglan segja nei við að afhenda myndbönd úr búkmyndavél sinni.

En aftur að Norðurlöndunum. Í Danmörku er sjálfstætt eftirlit með lögreglu og rannsakendur og saksóknarar eru í þessari eftirlitsnefnd og þau sinna bara rannsókn á mögulegum glæpum lögreglunnar og þau taka við kvörtunum frá borgurunum. Þegar ríkissaksóknari fór með rannsókn á saknæmu athæfi lögreglumanna áður fyrr þá benti hún sjálf á, annaðhvort í umsögn um breytingu á lögreglulögum eða í opnu bréfi til dómsmálaráðuneytisins, ég man ekki alveg, en það var þess efnis að ríkissaksóknari rannsakaði bæði brot gegn valdstjórninni og svo brot lögreglunnar og það orki tvímælis gagnvart sjálfstæði stofnunarinnar til að rannsaka brot lögreglu gegn borgurum vegna þess að oft er þetta bara eitt og sama atvikið. Ég ætla ekki, virðulegi forseti, að fara að reifa dóma hérna en það er mjög mikilvægur dómur sem varðar þetta efni, hæstaréttardómur nr. 2 frá 1990, hann er kallaður aðskilnaðardómur III, þar sem Hæstiréttur lagði til grundvallar að sýslumannsembættið og dómari — eða var það lögreglustjóri? — væru bara tvö aðskilin embætti og sama manneskjan mætti ekki gegna sömu störfum til að ganga ekki inn á valdsvið hinnar, það væri auðveldara til þess að veita aðhald. Og þetta er nákvæmlega svona mál. Bara það að ríkissaksóknari rannsaki bæði brot gegn valdstjórninni og líka meint brot lögreglunnar gagnvart borgurum er ekki til þess fallið að það muni skila einhverjum árangri og það eykur ekki traust í garð lögreglunnar. Ég hlakka til að sjá hvernig hv. allsherjar- og menntamálanefnd tekur í þetta mál og hvernig þau ætla að sinna vinnslu þess í nefndinni. Það gleður mig rosalega mikið, ég ætla bara að segja það, að þingflokkur VG er búinn að gera fyrirvara við þetta frumvarp vegna þess að ég held að það sé bara alls ekki góð þróun að vera að auka eftirlitsheimildir lögreglu áður en við aukum eftirlit með lögreglu.