lögreglulög.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að taka undir það sem hér hefur komið fram hjá ræðumönnum í þessu máli, þ.e. mikilvægi þess að umfjöllun um málið í allsherjar- og menntamálanefnd verði vönduð og að það verði skoðað út frá ólíkum sjónarhornum. Eins og fram hefur komið hér þá er meginefni frumvarpsins þríþætt. Lagt er til að lögfest verði sérstakt ákvæði um meðferð og notkun vopna hjá lögreglu, auk þess sem sett verði lagastoð fyrir nánari reglum þess efnis. Þá lúta meginbreytingarnar að starfi lögreglu í þágu afbrotavarna og er ætlað að skýra og styrkja heimildir lögreglu til aðgerða á því sviði. Einnig er verið að gera ákveðnar breytingar á eftirliti með störfum lögreglu, verið að efla það með því að setja á fót innra gæðaeftirlit hjá embætti ríkislögreglustjóra.
Ég ætlaði að koma hér örstutt til þess að koma á framfæri mikilvægi þess að í umfjölluninni verði ekki eingöngu hugað að þeim afbrotavörnum sem tilteknar eru í greinargerð með frumvarpinu og í frumvarpinu sjálfu heldur afbrotavörnum sem felast í góðum forvörnum í samfélaginu, afbrotavörnum sem mikilvægt er að lögreglan komi að í samstarfi við alla þá sem sinna forvörnum hvar sem er í samfélaginu, með börnum, ungmennum og fólki sem á einhvern hátt finnur sig ekki tilheyra því samfélagi sem það býr í.
Þegar fjallað var um þetta mál í þingflokki Framsóknarflokksins var rætt ítarlega um mikilvægi forvarna í starfi lögreglunnar og hvort tækifæri fælust í því að efla forvarnir samhliða innleiðingu nýs verklags á öðrum sviðum, að efla það starf sem hefur stundum verið kallað starf samfélagslögreglunnar og er svo mikilvægt, hvort sem er í einstökum hverfum eða byggðarlögum, að fólk alist upp við það að lögreglan sé hluti af samfélaginu sem allir geti unnið með ef þeir þurfa á því að halda, að byggt sé upp traust og það sé hluti af því að tilheyra samfélagi að geta treyst lögreglunni, geta treyst því að hægt sé að vinna með henni á öllum tímum. Þannig viljum við byggja upp samfélag.
Við bókuðum ákveðinn fyrirvara við málið um að í starfi allsherjar- og menntamálanefndar yrði, samhliða þeim breytingum sem lagðar eru til með frumvarpinu, lögð áhersla á að hlutdeild forvarna í starfi lögreglunnar verði aukin og að aukin áhersla verði lögð á tengsl við nærsamfélagið og sérstaklega á aukin tengsl við ungt fólk, þ.e. að hlutverk samfélagslögreglu verði aukið og verði liður í afbrotaforvörnum. Því öflugri sem sá liður er því minni þörf verður fyrir þær afbrotaforvarnir sem verið er að leggja áherslu á í þessu frumvarpi.