raforkulög.
Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á raforkulögum, nr. 65/2003. Megintilgangur frumvarpsins er að bregðast við úrskurði úrskurðarnefndar raforkumála í máli nr. 8/2021, sem kveðinn var upp hinn 30. júní sl. Frumvarpið er samið í umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu í samstarfi við Orkustofnun. Þar sem um er að ræða nokkuð aðkallandi mál var ekki viðhaft samráð um áform um lagasetningu en drög að frumvarpinu voru kynnt til umsagna í samráðsgátt stjórnvalda. Í samráðskafla greinargerðar er greint frá umsögnum við frumvarpsdrögin og viðbrögð við þeim.
Í úrskurði úrskurðarnefndar raforkumála í máli nr. 8/2021 komst úrskurðarnefndin að þeirri niðurstöðu að ákvæði reglugerðar um framkvæmd raforkulaga sem varða innheimtu viðbótarkostnaðar, svokallað kerfisframlag fyrir dreifiveitur, skorti fullnægjandi lagastoð. Kerfisframlag felur í sér sérstaka greiðslu notanda ef ný tenging veldur það miklum kostnaði að tekjur dreifiveitu af tengingunni samkvæmt gjaldskrá standa ekki undir þeim kostnaði. Kerfisframlag byggir ekki á þeirri forsendu að kostnaði við sérstaklega kostnaðarsamar tengingar sé velt yfir á aðra notendur með almennum gjaldskrárhækkunum. Rétt er að benda á að raforkulög mæla fyrir um skyldu dreifiveitna til að tengja alla við dreifikerfið sem eftir því sækjast. Þá skal tryggja að tekjur dreifiveitna sé í samræmi við þann kostnað sem hlýst af veittri þjónustu að teknu tilliti til arðsemi.
Raforkulög mæla sérstaklega fyrir um heimild til flutningsfyrirtækisins Landsnets til að innheimta viðbótarkostnað vegna tengingar við flutningskerfið. Við setningu raforkulaga, nr. 65/2003, var í 4. mgr. 17. gr. laganna að finna sambærilegt ákvæði um heimild dreifiveitna til að innheimta viðbótarkostnað vegna tengingar sem veldur auknum tilkostnaði annarra notenda. Með breytingum á raforkulögum árið 2011 féll ákvæðið úr lögunum. Ekki er að finna á því sérstakar skýringar en ljóst er að markmið breytinganna var ekki að taka fyrir innheimtu viðbótarkostnaðar enda hefur verið litið svo á að dreifiveitum sé það heimilt, samanber ákvæði þess efnis í reglugerð um framkvæmd raforkulaga.
Í ljósi framangreinds úrskurðar úrskurðarnefndar raforkumála er rétt að þetta ákvæði sé sett aftur inn í lögin til að taka af öll tvímæli um heimild dreifiveitna að þessu leyti.
Þá er í frumvarpinu mælt fyrir um að dreifiveitur skuli í samráði við notendur setja sameiginlegar reglur um rekstur og stýringu raforkudreifingar sem samþykktar skuli af Orkustofnun en í reglugerð um framkvæmd raforkulaga er mælt fyrir um slíkar samræmdar reglur. Þá er í raforkulögum að finna sambærilegar kröfur gagnvart flutningsfyrirtækinu Landsneti. Tilgangurinn er að gæta samræmis gagnvart ákvæðum raforkulaga sem varða flutningsfyrirtækið Landsnet og ákvæðum reglugerðar um framkvæmd raforkulaga.
Virðulegur forseti. Ég hef rakið meginefni frumvarpsins og ég legg til að frumvarpinu verði að lokinni 1. umr. vísað til hv. atvinnuveganefndar.