raforkulög.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir greinargóða ræðu og að fara í gegnum efnisatriði þessa að því er virðist frekar stutta frumvarps, mikilvægs frumvarps sem skiptir máli til að skerpa á því sem þarf að breyta, m.a. á grundvelli niðurstöðu úrskurðarnefndarinnar. Hins vegar af því að málið fjallar fyrst og fremst um það, ef ég skil rétt, og bið þá hæstv. ráðherra um að leiðrétta mig ef ég er að fara með fleipur, að samræma þessar gjaldskrár eða getuna öllu heldur til að samræma gjaldskrár og þá kviknaði eðli málsins samkvæmt spurningin: Mun það endilega hafa áhrif á gjaldskrárnar til hækkunar einstakra neytenda, þ.e. þessar breytingar sem ráðherrann boðar hér?