153. löggjafarþing — 64. fundur,  9. feb. 2023.

raforkulög.

536. mál
[19:05]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég held að hv. þingmaður hafi hitt naglann á höfuðið. Þetta er til að verja neytendur. Ef breytingin næst ekki getur það leitt til hækkunar verðs hjá almennum notanda og markmiðið er að notandi sérstaklega dýrra tenginga greiði fyrir það. Sá greiðir sem veldur kostnaði. Markmiðið er að skýra betur heimild dreifiveitna til að haga gjaldskrá sinni þannig að almennir notendur dreifikerfisins beri ekki kostnað ef nýjar tengingar notenda við kerfið valda viðbótarkostnaði sem bundinn er við þá tengingu. Það eru dýrar tengingar fram undan og kostnaðurinn myndi annars lenda á heimilum. Ég skil bæði hv. þingmann og umsögn Landverndar þannig að þau séu sátt við frumvarpið og ég er það líka, virðulegi forseti, enda flyt ég málið. Það er mjög oft þannig að þegar hæstv. ráðherrar flytja mál eru þeir sáttir við það. Ég finn ekki annað en mikla sátt í þessum sal. Hann er að vísu ekkert ofsalega fjölmennur nákvæmlega núna en það breytir því ekki að ég held að það sé mjög gott þegar ég og hv. þingmaður náum saman, það er bara mjög góð byrjun á þessu máli.